Leit að sundmanninum stendur enn yfir

Leit stendur enn yfir að sundmanni við Fiskislóð en lögreglu barst tilkynning um mann í sjónum klukkan korter í fimm í dag. Mikill viðbúnaður er á svæðinu vegna málsins. 

Þetta segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hann hafði ekki upplýsingar um hversu lengi maðurinn er talinn hafa verið í sjónum. 

Fleiri kafarar á leiðinni

Kafarar frá sérsveitinni voru ræstir út að beiðni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins. Þyrla Landhelgisgæslunnar tekur einnig þátt í aðgerðunum. 

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur aukið viðbúnað á svæðinu en á vettvangi eru sjóbjörgunarflokkar, þrír björgunarbátar, björgunarskipið Jóhannes Briem auk þess sem kafarar frá Suðurnesjum eru á leið á vettvang. 

Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við mbl.is. 

Blaðamaður mbl.is er á vettvangi og segir að björgunarsveitarmenn séu farnir að leita í grjótinu við sjógarðinn.

Hefur leitin einnig færst fjær ströndinni en þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarbátar virðast hafa fært sig utar.  

Fréttin hefur verið uppfærð með frekari upplýsingum.

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur aukið viðbúnað vegna leitarinnar.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur aukið viðbúnað vegna leitarinnar. mbl.is/Hákon
Mikill viðbúnaður er á svæðinu.
Mikill viðbúnaður er á svæðinu. mbl.is/Hákon
Viðbragðsaðilar á vettvangi.
Viðbragðsaðilar á vettvangi. mbl.is/Hákon
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir aðstoð frá sérsveitinni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir aðstoð frá sérsveitinni. mbl.is/Hákon
Fólk virðist hafa safnast saman til að fylgjast með aðgerðunum.
Fólk virðist hafa safnast saman til að fylgjast með aðgerðunum. mbl.is/Hákon
Af vettvangi.
Af vettvangi. mbl.is/Hákon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »