Hvaða erindi á saga síðari heimstyrjaldarinnar við okkur í dag? Eða Kóreustríðsins sem geisaði frá 1950-1953? Voru þessar styrjaldir skrifaðar í skýin í kjölfar fyrstu heimstyrjaldarinnar?
Allt eru þetta spurningar sem leita á hugann þegar bækur breska blaðamannsins og sagnfræðingsins Max Hastings eru lesnar.
Magnús Þór Hafsteinsson, rithöfundur, hefur þýtt þrjú af stórvirkjum hans um styrjalda- og stjórnmálasögu 20. aldarinnar. Fyrst var það bókin Vítislogar sem fjallar um síðari heimstyrjöldina, þá Kóreustríðið 1950-1953 og þá Kúbudeilan 1962. En síðastnefnda bókin er til umfjöllunar Bókaklúbbs Spursmála þennan mánuðinn.
Stefán Einar settist niður með Magnúsi Þór og ræddi við hann um hið mikla þýðingarstarf sem hefur skilað þessum verkum til íslenskra lesenda á móðurmálinu.
Samtalið má finna á Spotify-síðu Spursmála og er aðgengilegt hér að ofan.
Magnús hefur upplýst að hann langi til þess að þýða fleiri bækur Hastings, meðal annars þá sem fjallar um Falklandseyjastríðið sem háð var árið 1982.
Meðlimir Bókaklúbbsins hyggjast koma saman í næstu viku á Vinnustofu Kjarvals. Þar ræðir Stefán Einar við Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins um bókina Kúbudeilan 1962. Þar verður leitast við að svara spurningunni um hvað atburðir löngu liðinna tíma geti kennt okkur, ekki síst á róstusömum tímum þar sem átök virðast færast mjög í aukana.
Klúbbmeðlimir geta skráð sig til þátttöku á þessum áhugaverða viðburði hér en hann fer fram kl. 20:00 á miðvikudag og er aðgangur meðlimum að kostnaðarlausu.