Álestur akstursmæla er ekki eitt af skilgreindum verkefnum Vegagerðarinnar og á engan hátt er gert ráð fyrir slíkri þjónustu í starfsemi stofnunarinnar.
Þetta segir Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar í umsögn til efnahags- og viðskiptadeildar Alþingis um frumvarp til laga um kílómetragjald þar sem segir að Vegagerðin eigi að sjá um álestur.
Ekki var leitað til Vegagerðarinnar eftir umsögnum og ekkert samráð haft við stofnunina.
Frekari umfjöllun um málið má finna í Morgunblaðinu í dag eða í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.