Tíu ára drengur lést þegar dráttarvél féll í Hvítá í Hrunamannahreppi síðdegis í gær.
Hann hét Víglundur Þorsteinsson og var fæddur árið 2015. Hann bjó í Haukholtum ásamt foreldrum sínum og þremur systkinum.
Slysið varð skammt frá bænum sem liggur við Hvítá. Drengurinn var ökumaður dráttarvélarinnar en hann var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu í tilkynningu á Facebook en þar segir að bænastund verði haldin í Hrunakirkju í kvöld klukkan 20.
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á tildrögum slyssins, en sú vinna er á frumstigum.
Seint á sjötta tímanum í gærdag lenti dráttarvél í Hvítá og var drengurinn fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á spítala.
Lögreglan segir að unnið sé að því að ná dráttarvélinni upp úr ánni en aðstæður á vettvangi eru erfiðar. Ekkert bendir til þess að saknæmt athæfi hafi átt sér stað, að sögn lögreglu.
„Lögreglan vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra viðbragðsaðila sem komu að björgunaraðgerðum í gær sem og þeim aðilum sem hafa unnið að því að ná dráttarvélinni upp í dag.“