Veitingastaðurinn Fish House í Grindavík var pakkfullur af erlendum ferðamönnum þegar rafmagnsleysi skall á. Vísa þurfti öllum gestum staðarins út og segir veitingamaður staðarins að tjónið sé gríðarlegt.
„Við getum ekkert eldað mat eða neitt. Maður spyr sig hver ber ábyrgð á þessu og hver kemur til með að borga tjónið,“ segir veitingamaðurinn Kári Guðmundsson.
Kári hefur nýlega opnað veitingastaðinn aftur á ný eftir að hann hafði verið lokaður í átján mánuði. Í samtali við mbl.is fyrr í mánuðinum kvaðst Kári vera tilneyddur til að opna staðinn aftur eftir að stuðningsaðgerðum ríkisins við grindvísk fyrirtæki var hætt 30. mars.
„Þetta er ekki skemmtileg byrjun,“ segir hann.
Kári segir að mikið líf og fjör hafi verið í Grindavík í dag og að fjölmargir ferðamenn hafi gert sér ferð í bæinn. Segir hann að staðurinn hafi verið fullbókaður en að ljóst sé að hann verði fyrir einhverju fjárhagslegu tjóni þar sem greiða þurfi starfsmönnum biðlaun á meðan staðurinn fái engar tekjur á móti.
Einhverjir gestir staðarins höfðu þegar fengið mat á diskinn áður en rafmagnsleysið skall á en að þeir hafi ekki getað greitt fyrir matinn þar sem posar veitingastaðarins þurfa rafmagn.
Spurður hvort staðurinn verði opnaður á ný þegar rafmagnið kemur aftur á síðar í dag segir Kári að fylgst verði með stöðunni.
„Við bíðum aðeins en dagurinn er samt eiginlega ónýtur,“ segir Kári.