„Það er verið að gera rannsóknir pólitískar“

Númi fór með ræðu fyrir hönd útskriftarnema.
Númi fór með ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Ljósmynd/Aðsend

Íslenskur vélaverkfræðingur sem útskrifaðist nýlega úr doktorsnámi úr UC Berkley hélt útskriftarræðu fyrir hönd útskriftarnema á laugardag. Hann hefur verið búsettur í Bandaríkjunum síðastliðin sex ár og segir skrýtna tíma í Bandaríkjunum hvað varðar frelsi vísindamanna til rannsókna. Hann finnur fyrir mikilli óvissu.  

Númi Sveinsson Cepero útskrifaðist um helgina úr fimm ára meistara- og doktorsnámi í vélaverkfræði úr UC Berkley í Kaliforníu. Í náminu skoðaði hann og þróaði stafræna tvíbura til framfara í hjarta- og æðalækningum. Hann heldur nú til háskólans í Texas Austin þar sem hann mun stunda frekari rannsóknir á því sviði sem nýdoktor. 

Spurður hvað það þýði að þróa stafræna tvíbura til framfara í hjarta- og æðalækningum útskýrir Númi að hugmyndin byggist á því að geta gert tölvulíkan af líffærum fólks líkt og hjarta þeirra.

Tölvuhjartað eða tölvuæðakerfið er sérsniðið að hjarta- og æðakerfi hvers og eins og segir að með þessari tækni sé hægt að skoða hvernig hjarta- og æðakerfið bregðist við ákveðnum aðstæðum eins og aðgerðum eða öðru álagi á hjarta- og æðakerfið. 

„Þá getum við kannað alls konar hluti án þess að þurfa að fara inn í sjúklinginn,“ segir Númi. 

Rannsóknir eigi ekki að vera pólitískar

Líkt og fyrr segir þá fór Númi með ræðu fyrir hönd útskriftarnema á laugardag. Í ræðu sinni vék hann að sjálfstæði vísinda og rannsókna sem hann sagði að ættu undir högg að sækja. 

„Verkfræði við Berkeley hefur lengi staðið fyrir nýsköpun, að brjóta múra og spyrja spurninga sem aðrir forðast. En í dag á sjálfstæði vísinda og frjálsar rannsóknir undir högg að sækja. Við sem útskrifumst héðan sem verkfræðingar, vitum að sannleikurinn skiptir máli. Að staðreyndir skipta máli og að leit að þekkingu sem þjónar samfélaginu skiptir máli,“ segir Númi meðal annars. 

Spurður hvers vegna hann hafi gert þetta að umtalsefni sínu segir Númi að mikil óvissa ríki á sviði rannsókna og vísinda í Bandaríkjunum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tók við embætti í janúar. Vísar hann m.a. til þess að ákveðin orð eru á „bannlista“ ríkisins þegar sótt er um rannsóknastyrki á vegum opinberra styrkveitinga. 

„Það er verið að reyna stjórna því hvað háskólar rannsaka og það er verið að gera rannsóknir pólitískar. Ég er því algjörlega ósammála. Mér finnst að vísindamenn eigi að hafa frelsi til þess að skoða hvað þeim þykir mikilvægast og sérstaklega að við verkfræðingar fáum að skoða það sem hjálpar fólki og samfélögum mest en ekki því sem pólitíkusum finnst,“ segir Númi. 

Númi segir óvissuna mikla.
Númi segir óvissuna mikla. Ljósmynd/Aðsend

Mikill munur á fyrra og seinna kjörtímabili Trumps

Númi flutti til Bandaríkjanna árið 2019 þegar Trump var forseti á fyrra kjörtímabili sínu. Kveðst hann finna mikinn mun á fyrra og seinna kjörtímabili Trumps. 

„Á fyrra kjörtímabilinu voru ekki svona beinar aðgerðir gegn háskólum og rannsóknum. Þeim var frekar beint að alþjóðlegum nemendum að einhverju leyti. Þá var verið að þvinga þá í staðkennslu en ekki fjarkennslu en þetta var á covid-tímum

Svo kemur Biden og þá fékk maður smá létti. Hann talaði m.a. um að auka fjárframlög til rannsókna en eftir kosningarnar í fyrra vissi maður ekki hverju átti við að búast. Eftir að hann tók við í janúar kom strax í ljós að hann hefði einhverjar áætlanir um aðgerðir og við fundum fyrir því um leið,“ segir Númi en nokkrir af vinum hans misstu styrkina sína til rannsókna og einhverjir misstu dvalarleyfi sitt eftir að Trump tók við. 

Ráðlagt að koma ekki heim til Íslands

Númi stefnir að því að koma heim til Íslands í sumar þrátt fyrir að starfsmenn háskólans í Texas hafi mælt sterklega gegn því vegna hættu á að hann fái ekki að koma aftur inn í landið. 

„Þau halda að það séu miklar líkur á því að ég geti lent í ógöngum,“ segir hann. 

Fréttir bárust af því í gær að utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefði fyrirskipað að stöðva allar afgreiðslur um námsmannaleyfi erlendra námsmanna í Bandaríkjunum á meðan beðið væri eftir frekari leiðbeiningum frá Bandaríkjastjórn. 

Númi segir að fréttir gærdagsins valdi enn frekari óvissu um framhaldið. 

„Eina sem maður getur gert er að sjá til og vona það besta,“ segir hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »