Mikilvæg yfirlýsing Bandaríkjaforseta

Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir yfirlýsingu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin muni aflétta viðskiptaþvingunum af Sýrlandi vera mjög mikilvæga.

Í Dagmálum á mbl.is segir hann teikn hafa verið á lofti um yfirlýsinguna og að þrýst hafi verið á Bandaríkjaforseta að stíga þetta skref, sérstaklega af Sádi-Arabíu. Þá hafi forsetinn lýst þessu yfir í heimsókn á svæðið.

Evrópusambandið fylgdi á eftir

„Bretar afléttu sínum viðskiptaþvingunum fyrir um mánuði síðan og Evrópusambandið tilkynnti um afléttingar í kjölfar yfirlýsingar Trumps.

Enduruppbygging í Sýrlandi og að koma einhvers konar stjórn þar á lappirnar, sem er verið að reyna að gera, gengur mjög erfiðlega ef það eru stífar viðskiptaþvinganir,“ segir Erlingur og útskýrir að ef einhver ætli að setja fjármagn í einhvers konar uppbyggingu í landinu þá gerist viðkomandi brotlegur við þvinganirnar, sem feli í sér ákveðna lagalega áhættu fyrir viðkomandi.

Kapphlaup við tímann

„Þetta er svona forsenduákvörðun og það er ákveðið kapphlaup við tímann að hjálpa þessum nýju sýrlensku stjórnvöldum að koma einhverju skikki á málin innanlands, þar á meðal efnahagsmálin og öryggismálin áður en hlutirnir fari mögulega aftur í kaldakol,“ segir Erlingur.

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Ahmed al-Sharaa, forseti í bráðabirgðarstjórn Sýrlands, …
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Ahmed al-Sharaa, forseti í bráðabirgðarstjórn Sýrlands, takast í hendur í Riyadh í Sádi-Arabíu í opinberri heimsókn Trumps á svæðið á dögunum. AFP/Bandar Al-Jaloud
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »