Við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn liggur nú seglskipið Danmörk bundið við bryggju. Líkt og nafnið gefur til kynna er skipið danskt en það er nærri 100 ára gamalt og á sér ríka sögu.
Í skipinu er nú starfræktur sjómennskuskóli fyrir ungt fólk en einn sjóliðanna þar um borð er hinn 21 árs gamli Viktor Örn Ingvarsson.
Frá því í febrúar hefur Viktor ásamt um 80 öðrum ungmennum siglt um Atlantshafið og hefur hann lent í ófáum ævintýrum á siglingunni.
Sjálfur segir Viktor hálfgerða tilviljun hafa ráðið því að hann skyldi gerast sjóliði um borð í seglskútunni, en hann segist hafa séð auglýst eftir fólki á netinu og einfaldlega látið vaða. För skipsins hófst í Malaga á Spáni fyrr á þessu ári og áætlað er að henni ljúki í Danmörku í júlí. Í millitíðinni hefur skipið haft viðkomu í Portúgal, Írlandi og er nú í áningarstoppi á Íslandi.
„Þetta er búið að vera erfitt, ég viðurkenni það, en þetta er aðallega bara gaman. Stundum er maður að borða kvöldmat þegar maður áttar sig á því að maður er staddur úti á miðju Atlantshafi að sigla skipi sem er eins og sjóræningjaskip í klikkuðu ævintýri,“ segir Viktor um lífið um borð.
„Hlutverk okkar nemendanna er að sjá alfarið um skipið. Við fáum ýmis verkefni á hverjum degi og erum t.d. oft á dag send upp í möstrin að reyra seglin,“ segir Viktor. Það er því ekki fyrir hvern sem er að vera um borð, en hæsta mastur skipsins er um 40 metrar á hæð.
Viktor segist sjálfur vera spennufíkill og að hann veigri sér því ekki við neinum verkefnum sem geti talist hættuleg. Þrátt fyrir að siglingin hafi að mestu verið í góðu veðri, þá hefur hún ekki verið alveg háskalaus og hefur Viktor því fengið sitthvað fyrir sinn snúð.
„Við höfum tvisvar lent í því að allar hendur séu kallaðar á dekk. Í fyrra skiptið mættust tvær vindáttir hjá okkur en ef maður er óheppinn getur það breyst í fellibyl. Þá þurftu allir að hjálpast að við að sigla skipinu þaðan. Það var mjög gaman og adrenalínið fór alveg í botn. Í seinna skiptið var risahvirfilbylur rétt hjá skipinu og sjórinn þyrlaðist alveg upp í skipið og maður vissi ekkert hvað var að gerast,“ segir Viktor.
Þótt gaman sé að sigla um á skipinu segir Viktor einnig kærkomið að stíga aftur á þurrt land og fá sér hamborgara með vinum sínum úr áhöfninni. Að siglingunni lokinni útskrifast Viktor úr náminu og öðlast hann þá réttindi til starfa í sjávarútvegi í Danmörku. Hvað tekur við að siglingunni lokinni segir Viktor óráðið, en að skilyrði sé að það verði jafn mikið ævintýri og siglingin.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.