Húsnæðisskortur ríki með óbreyttum vaxtamörkum

Ásdís Kristjánsdóttir fór yfir tækifæri og áskoranir sveitarfélaga á fundi …
Ásdís Kristjánsdóttir fór yfir tækifæri og áskoranir sveitarfélaga á fundi HMS í dag. mbl.is/Karítas

„Ég get ekki annað séð en að viðvarandi húsnæðisskortur blasi við og verði áfram nema við breytum þessum vaxtamörkum og heimilum sveitarfélögum að byggja á stærra svæði þar sem við getum byggt hraðar og hagkvæmara.“

Þetta segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, á opnum fundi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) þar sem helstu niðurstöður úr fasteignamati fyrir árið 2026 voru kynntar. Hún segir að forsendur hafi breyst síðan vaxtamörkin voru sett.

Þétting byggðar hefur áhrif á fasteignaverð

Aðspurð hvort þétting byggðar hafi slæm áhrif á fasteignaverð segir Ásdís að þétting sé góð og gild en ekki þegar það er eina stefnan.

„Það sem ég hef bent á er að þó að við séum að þétta byggð þá þurfum við líka að geta byggt á stærra svæði vegna þess að lóðir eru bara af skornum skammti innan þess svæðis sem við höfum heimild til að byggja á.

Þétting byggðar tekur tíma og er kostnaðarsamari og það hefur auðvitað áhrif á þróun fasteignaverðs,“ segir Ásdís og bætir við að Kópavogsbær eigi mjög fáar lóðir eftir til að brjóta nýtt land.

Skattahækkun á fólk og fyrirtæki

Hækkun fasteignamats og fasteignagjalda segir Ásdís ekki vera neitt annað en skattahækkun á fólk og fyrirtæki nema sveitarfélögin bregðist við og lækki álagningu sína á móti.

Af tíu stærstu sveitarfélögunum hefur einungis Kópavogsbær lækkað fasteignagjöld að raunvirði.

Af tíu stærstu sveitarfélögunum hefur einungis Kópavogsbær lækkað fasteignagjöld að …
Af tíu stærstu sveitarfélögunum hefur einungis Kópavogsbær lækkað fasteignagjöld að raunvirði. Mynd/Byggðastofnun

Aukið lóðaframboð geti slegið á hækkanir

„Ég sé hvað fasteignamatið er að fara að hækka mikið í Kópavogi og sest nú við skrifborðið og reikna hvað álagningin þarf að lækka mikið á móti,“ sagði Ásdís kímin. 

Samkvæmt nýbirtu fasteignamati mun fasteignamat íbúða í Kópavogi hækka um 9,7%. „Ef við myndum ekki gera neitt þá myndum við auka skattbyrði á heimili í Kópavogi um 9,7%.“

Ásdís segir aukið lóðaframboð geta haft áhrif á fasteignaverð og slegið á hækkanir því þá sé verið að mæta eftirspurninni. „Eins og sakir standa erum við ekki með nægt framboð til að mæta þörfinni.“

Sveitarfélögum refsað

Frumvarp innviðaráðherra um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga segir Ásdís vera skilaboð stjórnvalda til sveitarfélaga, sem ekki eru með útsvarið í botni, að þá verði framlög úr jöfnunarsjóði til þeirra skert.

„Það er að segja, þá munum við fá minni framlög úr jöfnunarsjóði til að reka grunnskólana okkar, velferðarkerfið og svo framvegis. Ef þetta frumvarp fer í gegn að öllu óbreyttu mun það hafa áhrif á sveitarfélög sem eru ekki með útsvarið í botni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »