Fasteignamat hækkar mest á Suðurnesjum og á Norðurlandi. Þetta segir meðal annars í fréttatilkynningu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) um þróun fasteignamats fyrir árið 2026, sem kynnt er á opnum fundi sem stendur nú yfir.
Fasteignamat hækkar um 9,2% milli ára. Meðalhækkun fasteignamats íbúða nemur 10,2% á meðan fasteignamat sumarhúsa hækkar um 11,5% og fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8%.
Á Suðurnesjum hækkaði fasteignamat umfram landsmeðaltal þar sem mikil eftirspurn var á íbúðamarkaði í nágrannasveitarfélögum Grindavíkur á seinasta ári.
HMS hefur þó ákveðið að halda fasteignamati í Grindavíkurbæ óbreyttu milli ára þar sem óvissuástand ríkir og engin markaðsvirkni hefur átt sér stað í sveitarfélaginu.
Fasteignamat á Norðurlandi hækkar einnig umfram landsmeðaltal en virði atvinnu- og sumarhúsaeigna hefur hækkað töluvert á svæðinu.
Aðferðarfræðin við útreikning fasteignamats er sambærileg þeirri sem notuð hefur verið síðustu ár og byggir beint eða óbeint á kaupverði sambærilegra fasteigna.
HMS hyggst þó endurskoða aðferðarfræði fyrir fasteignamat atvinnueigna fyrir fasteignamat 2027, með það að markmiði að útreikningurinn sé gangsærri og að fasteignamatið endurspegli betur markaðsvirði