Smyglaði barni inn á Stuðla: „Mjög alvarlegt“

Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, segir málið litið …
Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, segir málið litið mjög alvarlegum augum. Samsett mynd/Karítas/Árni Sæberg

Fjórtán ára drengur, sem vistaður er á Stuðlum, gat smyglað öðru barni inn á meðferðarheimilið þar sem það dvaldi í að minnsta kosti sex klukkutíma án þess að nokkur starfsmaður yrði þess var. Það var ekki fyrr en drengurinn bað starfsmann um að hleypa gestinum út um kvöldið að upp komst um málið. Atvikið átti sér stað fyrir rúmum tveimur vikum.

Móðir drengsins var ekki látin vita af uppákomunni og heldur ekki foreldrar barnsins, sem voru að hefja leit þar sem ekki hafði heyrst frá barninu allan daginn. Það var drengurinn sjálfur sem sagði móður sinni frá málinu daginn eftir. 

„Ef þú getur laumað inn einstaklingi, ekki bara í korter heldur sex eða átta klukkutíma, þá er eitthvað mikið að. Það er ekki skrýtið að það sé hægt að lauma inn fíkniefnum ef það er hægt að lauma inn fólki,“ segir móðirin í samtali við mbl.is.

Málið tilkynnt Gæða- og eftirlitsstofnun

Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, sem Stuðlar heyra undir, staðfestir í samtali við mbl.is að umrætt atvik hafi átt sér stað. Hann segir málið mjög alvarlegt og að einhver mistök hafi átt sér stað. Málið var tilkynnt til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sem tók þá afstöðu að það yrði ekki skoðað frekar. Innri skoðun mun þó fara fram, að sögn Funa.

Móðirin segir augljóst að öryggi sé ábótavant á Stuðlum ef hægt er að koma heilli manneskju þar inn óséðri og að hún geti dvalið þar klukkutímum saman. 

Þá var ekki hringt í hana og farið yfir atvikið fyrr en í vikunni á eftir, en sjálf hafði hún haft orð á málinu við starfsfólk Stuðla.

Hún tekur þó fram að ekki sé við starfsfólkið á gólfinu að sakast, það sé að gera sitt besta í erfiðu starfsumhverfi. 

„Þetta fólk er að vinna í ömurlegu starfsumhverfi. Fólkið á gólfinu er almennt dásamlegt,“ segir hún. „Það má ekki hengja bakara fyrir smið,“ bætir hún við. Ábyrgðin liggi hjá stjórnendum Barna- og fjölskyldustofu að hennar mati.

Tókst að strjúka í 26. skipti

Drengurinn var áður vistaður á meðferðarheimilinu Blönduhlíð á Vogi en er nýlega kominn inn á Stuðla. Hann hefur ítrekað strokið af báðum meðferðarheimilunum og einnig úr neyðarvistun Stuðla. 

26 leitarbeiðnir hafa verið gefnar út vegna drengsins frá því í febrúar á þessu ári og er móðir hans gjörsamlega útkeyrð á því að vera sífellt að leita að barninu, en hún tekur yfirleitt þátt í leitinni með lögreglunni. 

Þegar lögreglan kemst ekki í verkefnið leitar hún að honum sjálf, líkt og síðustu viku þegar hún leitaði í 10 klukkutíma áður en hún fann hann.

Þrátt fyrir að drengurinn ætti að vera undir auknu eftirliti vegna ítrekaðra stroka tókst honum að strjúka í 26. skiptið frá því blaðamaður ræddi við móðurina og þangað til fréttin birtist.

„Hvað ef það gerist eitthvað alvarlegt þegar barn strýkur? Ætla þau að bíða eftir því? Hvað ef barn deyr sem er í stroki, sem á að vera þarna inni? Eftir hverju ætla þau að bíða? Þetta endar með ósköpum. Hefur ekki nóg komið fyrir, eins og þetta með brunann,“ segir móðirin og vísar þar til brunans á Stuðlum í október síðastliðnum þar sem 17 ára drengur lést.

Aðgerðarleysið, ábyrgðarleysið og metnaðarleysið er með ólíkindum í þessum mikilvæga málaflokki,“ bætir hún við.

„Eitthvað sem bregst í gæslunni“

Funi segir augljóst að mistök hafi orðið þegar drengnum tókst að smygla barni inn á meðferðarheimilið og að innri skoðun á atvikinu muni fara fram. 

„Það eru einhver mistök sem verða og eitthvað sem bregst í gæslunni á börnunum,“ segir Funi en hann veit þó ekki hvað nákvæmlega gerðist eða hvernig barninu var smyglað inn.

Gæða- og eftirlitsstofnun mun ekki taka málið til frekari skoðunar, líkt og áður sagði, og því fer eingöngu fram innri skoðun á því sem gerðist.

„Hugmyndin var að þetta færi í ytri skoðun en það er ekki búið að kanna málið til hlítar fyrir utan að ræða við forstöðumann um að skoða hvað gerðist og skrifa atvikalýsingu þannig við höfum eitthvað í höndunum,“ útskýrir Funi.

Hann segir allt verða gert til að koma í veg fyrir að svona lagað gerist aftur.

„Þetta er auðvitað mjög óheppilegt og skringilegt,“ segir Funi en málið var tilkynnt til Gæða- og eftirlitsstofnunar sem alvarlegt atvik. „Það voru viðbrögðin okkar því við metum að þetta sé mjög alvarlegt.“

Aðspurður segist hann ekki vita til þess að manneskju hafi áður verið smyglað inn á Stuðla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »