Kristrún eins og leir í höndum Þorgerðar

Sam­fé­lags­miðlar ís­lensks stjórn­mála­fólks eru alltaf und­ir smá­sjá og því sem þar fer fram gert skil með reglu­bundn­um og skemmti­leg­um hætti í Spurs­mál­um. Yf­ir­ferðina má sjá í meðfylgj­andi mynd­skeiði eða í rituðu máli hér að neðan.

Síðasti sumardagurinn runnið sitt skeið

Þá er sólarvíman runnin af flestum okkar og niðurtúrinn hafinn. Síðustu dagar hafa auðvitað verið lygilega góðir veðurfarslega hér á fróni og ekki laust við að landsmenn hafi verið eins og hráviði um allt og nýtt sér þetta öfgakennda blíðviðri til hins ýtrasta.

Þetta er það besta við gróðurhúsaáhrifin, Íslendingar elska „global warming“. Það er ekkert jafn eftirsóknarvert hér á landi eins og að líta út eins og reyktur lax á leiðinni í fermingarveislu.

Veislan stóð þó ekki lengi yfir. Síðasti alvöru sumardagurinn hefur runnið sitt skeið segja þeir. Aumingja við, íslensku fórnarlömbin. Nú sleikjum við sárin og sópum brunarústunum upp í fægiskóflu á meðan við erum með króníska kjúklingahúð af kulda.

Alltaf þurfum við að gjalda þess illilega að hafa fengið pínulitla smugu til þess að flatmaga í Nauthólsvík í friði fyrir suðvestan stormi með él á köflum. Hörð brotlending - og nú fjölgar lyfjaávísunum á þunglyndislyfjum örugglega enn eina ferðina. Skil vel að fólk þurfi að fá pillur við þessu.

Það vekur athygli hvað Kristrún er æ oftar farin að …
Það vekur athygli hvað Kristrún er æ oftar farin að temja sér siði Þorgerðar Katrínar. Samsett mynd

Diljá og Simmi Dabbi fóru í göngutúr

Vinirnir Diljá Mist og Sigmundur Davíð viðruðu hvort annað úti í sólinni á dögunum og skelltu sér í heilsubótargöngu saman. Ísdrottningin sjálf skjalfesti þetta uppátæki þeirra vina og deildi með alþjóð í „story“ á Instagram. Það er eitthvað sem segir mér að Diljá Mist, lýðheilsu- og þyngdarstjórnunar herforingi Alþingis, hafi fest Simma Dabba í hundatauminn og sigað honum út. Sko, samt með hundaröddinni sinni: „Simmi, eigum við að koma í göngutúr? Eigum við að koma út að pissa? Jáhhh koooomdu kallinn.“

Axlarnudd á Alþingi

Æ, svo var ekkert smá sætt hvað Áslaug Arna fór mjúkum höndum um Simma Dabba eftir göngutúrinn með Diljá. Hún gaf honum axlarnudd á Alþingi! Enda er maðurinn orðinn hálfrar aldar gamall. Það er ekkert fallegra en þverpólitísk vinátta.

Sjallastuð í HFJ

Heyrðu, svo nýtti þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sér líka blíðuna og skellti sér út á lífið saman. Rósa Guðbjarts bauð allri strollunni heim í Hafnarfjörðinn þar sem var aðeins skvett úr klaufunum og hrist hópinn saman. Það verða bara allir svo ógeðslega kærulausir í svona hita.

Kristrún með hverja þriggja stiga körfuna

Sannur íþróttaandi hefur einkennt hæstvirtan forsætisráðherra, K-Frost Jordan, síðustu misseri. Hún hefur eitthvað verið að læra af íþróttatrukknum Toggu Gunn og er nú farin að gefa íþróttamannslega þumla út í allar áttir þegar henni þykir eitthvað vel gert. Æ, þið vitið hvernig þetta er, smábörn eru eins og svampar sem apa allt upp fólkinu í nærumhverfi sínu og verða eins og leir í höndunum á þeim. Svo er hún líka allt í einu komin með körfuboltabakteríuna sem hefur einkennt Garðbæinga og Sauðkræklinga undanfarið. Sjáið þið þetta? K-Frost Jordan með hverja þriggja stiga körfuna á fætur annarri.

View this post on Instagram

A post shared by Samfylkingin (@samfylkingin)

Snúlli Másson - framtíðarnefnd og rúmfræði

Snúlli Másson hefur komið tvíefldur til baka eftir að litla krúttið hann Jón Snúllason fæddist. Nú vill hann að allir læri sömu rúmfræði formúlu og þau Nadine hafa verið að beita til að viðhalda íslenska mannkynsstofninum, annars erum við í algjörri útrýmingarhættu. Þaaað má ekki.

Snúlli Másson átti alls ekki að þurfa að benda á þessa útreikninga heldur hefði maður haldið að framtíðarnefnd, með Jón Gnarr í brúnni, hefði fyrir löngu átt að vera búin að vara okkur við þessu kynorkuleysi sem vofir yfir. Bíddu, var Jón Gnarr ekki að segja í síðustu viku að hann væri sko enginn spámaður? Siggu Kling og Valgarði Einarssyni ætti að bjóðast formannsstaða framtíðarnefndar. Það gefur auga leið, þvílíkt siðleysi. Leggja þessa nefnd niður takk.

Strengjabrúða

Sanna Magdalena vildi koma mikilvægum skilaboðum á framfæri í vikunni þar sem mikils misskilnings gætir stundum um að hún sé eitthvað undir hælnum á Gunnari Smára Egilssyni. Hvaða rugl er það? Auðvitað er hún ekkert undir hælnum á honum neitt, hún hatar táfýlu sko.

Þakklætis-Dagur

Þakklætis-Dagur B. Eggerts okkar er vel uppalinn og góður drengur og lætur iðulega þakklæti sitt í ljós fyrir hversdeginum. Við segjum nú bara takk fyrir þig elsku Dagur.

View this post on Instagram

A post shared by Samfylkingin (@samfylkingin)

Pawel á Teni

Pælið í því hvað smáatriði geta skipt miklu máli. Það munaði bara einum bókstaf að sjálfukóngurinn okkar, Pawel bestilingur, hefði getað tekið sjálfu á Tene en í staðinn tók hann sjálfu fyrir utan veitingastaðinn Teni á Blönduósi á dögunum. Miklu betra að ferðast innanlands til að halda Kvíði Reynissyni góðum.

Leigubílar verða seint þreytt umræðuefni

Þolinmæði Ásu Berglindar er komin að þolmörkum en hún er orðin langþreytt á leigubílaumræðunni sem þessi bölvaða stjórnarandstaða getur masað um út í eitt. Ég meina, þarf eitthvað að ræða þetta? Tekur einhver annar leigubíl nema Villi Árna þegar hann er á leiðinni heim af djamminu með Hlöllabát í hægri og veifandi taxa með vinstri eða tálbeitu-Beggi sem stundar það til yndisauka að setja upp leikrit í leigubílum.

Villi Árna tekur stundum leigubíl

Bergþór Óla er góð tálbeita

Varaþingmenn gerðu vart við sig

Nokkur ný andlit birtust líka á þinginu í vikunni. Geðveikt gaman að kynnast nýju og skemmtilegu fólki sem á eftir að láta til sín taka fyrir land og þjóð. Eða ekki.. Það er allur gangur á því.

Skvísukonan Diljá Ámunda kom ný inn fyrir Viðreisn.

View this post on Instagram

A post shared by Viðreisn (@vidreisn)

Aðalsteinn Leifsson líka en hann þekkja nú margir, mögulega einn svipfríðasti ríkissáttasemjari sem Ísland hefur átt.

Svo kom hin góðhjartaða Karólína Helga líka ný inn fyrir Viðreisn.

View this post on Instagram

A post shared by Viðreisn (@vidreisn)

Og síðast en ekki síst kom Gísli Stefánsson inn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann ætlar ekki að gera Snúlla Mássyni til geðs og taka hamstrafóðrið á þetta. Hann á nú þegar fjögur börn og hefur látið staðar numið - þrátt fyrir að vera rokkstjarna! Þetta er svona nýr Óttarr Proppé á þingi. Þingmaður á daginn, rokkstjarna á kvöldin.

Reykvíkingur ársins!

Já hey, nú er sko verið að leita eftir hvunndagshetju höfuðborgarinnar eða Reykvíkingi ársins. Veist þú um einhvern geggjaðan Reykvíking? Ég er búin að tilnefna tvo góða; Heiðu Björgu borgarstjóra og heiðvirtasta borgara landsins og auðvitað Gísla Martein! Enn ekki hvað. Þau tvo eru langbestu íbúar Reykjavíkurborgar. 

Nýjasta þátt Spursmála má nálgast í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »