Komi ekki til greina að slíta sambandi við Ísrael

Dagbjört segir það ekki þjóna neinum tilgangi að slíta stjórnmálasambandinu …
Dagbjört segir það ekki þjóna neinum tilgangi að slíta stjórnmálasambandinu við Ísrael. mbl.is/María Matthíasdóttir

Það kemur ekki til greina að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael, segir Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Í Facebook-færslu segir hún ekki þjóna neinum tilgangi að slíta sambandinu við Ísrael þar sem milliríkjasamtalið þurfi að vera virkt – „ekki síst ef við viljum hjálpa flóttafólki frá Gaza“.

Það sé „aldagömul hefð“ að viðhalda stjórnmálasambandi, ekki síst á ófriðartímum.

„Þannig höfum við ekki slitið stjórnmálasambandi við Rússland,“ segir þingmaðurinn en þó er vert að nefna að Ísland lagði niður starfsemi sendiráðs síns í Rússlandi um sumarið 2023.

Ísland ætli ekki að kæra sig inn í mál Suður-Afríku

Suður-Afríka hefur stefnt Ísra­el fyr­ir dóm­stól­inn og sakað Ísra­els­menn um brot gegn lög­um um þjóðarmorð í stríðsrekstri Ísra­els á Gasa­strönd­inni

Dagbjört segir í því samhengi mikilvægt að halda því til haga að ekkert af samstarfsríkjum Íslands hefði kært sig inn í málið með Suður-Afríku. Spánn og Írland hefðu skilað greinargerð um túlkun þeirra á samningnum en tekið þar enga afstöðu með eða á móti málsaðilum.

„Það er okkar grundvallarafstaða að við treystum dómstólnum og höfum kallað eftir því að Ísrael virði bráðabirgðaráðstafanir dómstólsins. Núna er mikilvægast að einblína á aðgerðir sem við teljum geta haft meiri áhrif, þ.m.t. samtal við samstarfsríki um að auka pressu á ísraelsk stjórnvöld að snúa af þessari vegferð og virða alþjóðalög,“ segir Dagbjört.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »