Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra týndi Visa-kortinu sínu erlendis. Hann segsit hafa átt í tómu tjóni við að loka kortinu, sér hafi hvergi tekist að finna neyðarnúmer hjá Visa eða Landsbankanum til að tilkynna glötun þess.
En þó er vel hægt að komast í samband vð neyðarvakt bankans með því að hringja í þjónustusíma Landsbankans. Auk þess er númer að finna á vefnum.
„Ég bara týndi því einhvers staðar. Ég bara veit það ekki,“ segir ráðherrann um kortið í samtali við mbl.is.
Eyjólfur er staddur í persónulegum erindagjörðum í Ósló í Noregi um þessar mundir, en fyrir það hafði hann verið á samgönguráðstefnu í Hlaupsigum í Þýskalandi sem nefnist International Transport Forum.
En í morgun uppgötvaði hann að Visakortið sitt væri týnt og hefur hann enga hugmynd um hvar það gæti verið.
Ráðherrann er forviða yfir því að hvergi hafi hann getað hringt í kortaútgefandann eða bankann til að loka kortinu sínu og sækja um nýtt. Ekkert neyðarnúmer hafi verið gefið upp á heimasíðum Landsbankans eða Visa.
„Það er eitt sem ég skil ekki að það er hvergi gefið upp símanúmer hvar á að hringja,“ segir Eyjólfur, „bæði hjá Vísa á Íslandi, visa.is, og bönkunum.“
Á endanum tókst honum þó að frysta kortið sitt og sækja um nýtt. Það gerði hann í bankaappinu, en hann segir að það hafi tekið sig allnokkurn tíma að fatta að hann gæti gert það.
Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi Landsbankans, bendir á í samtali við að auðvelt sé að tilkynna glatað kort utan þjónustutíma. Það þarf bara að hirngja í þjónustuverið.
„Ef þú þarft að tilkynna glatað kort, veldu 6,“ segir vélræn rödd í símsvara Landsbankans þegar hringt er utan þjónustutíma. Auk þess er að finna neyðarnúmer undir tryggingar og neyðaraðstoð á vef bankans sem er opið allan sólarhringinn.
Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum frá Landsbankanum.