Einn af forsprökkum hallarbyltingarinnar í Sósíalistaflokknum í dag segjast hafa spilað eftir „lýðræðislegum leikreglum“ og vísar á bug ásökunum um smölun.
Hann segist vilja sanna fyrir Sönnu Magdalenu, pólitískum leiðtoga flokksins, að ný framkvæmdastjórn hafi einlæga ásetning um að bæta starf flokksins.
Gunnar Smári Egillson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, og meint fylking hans voru sniðgenginn í kosningu til framkvæmdastjórnar flokksins á aðalfundi sósíalista í Bolholti í dag.
Svokallaður „tossalisti“ var látinn ganga með leiðbeiningum um hverja ætti að kjósa. Listin hafi greinilega verið til höfuðs Gunnars Smára og þeirra sem væru honum hliðhollir. Glæ ný framkvæmdastjórn var þannig kjörin og hafði betur gegn fólki sem hefur verið í forrystu flokksins um áraskeið.
„Þetta voru bara eðlilegar lýðræðislegar leikreglur,“ segir Karl Héðinn Kristjánsson, formaður Roða, sem hefur nú verið kjörinn í framkvæmdastjórn. Hann gengst við því að standa að baki listanum.
„Það var ekki smalað einhverjum nýjum félagssmönnum inn í flokkinn. Við vorum bara stór hópur sem var vel skipulagður og hvatti félagsmenn til að mæta á aðalfundinn og tala fyrir breytingnum sem hefur verið talað fyrir áður innan flokksins, fráfarandi forysta undir forystu Gunnarssmára ehfru reynt að koma í veg fyrir.“
Karl Héðinn Kristjánsson, formaður Roða, hefur átt í opinberum deilum við Gunnar Smára í nokkurn tíma og sakað flokksstofnandann um ofríki og andlegt ofbeldi.
Hann segir að kosningin sé skýr skilaboð frá félagsmönnum um að vilji sé fyrir breytingum.
„Þau vilja valddreifingu, sem við höfum boðað, stofnun svæðisfélaga og minnka miðstjórnina sem hefur verið,“ bætir hann við.
Einhverjir hafa strax sagt sig úr flokknum eftir kosninguna, meðal annars María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp og Guðmundur Hrafn Arngrímsson, sem hafa bæði verið ofarlega á lista flokksins.
„Það er sárt að horfa á góða félaga fara,“ segir Karl, „en við sem höfum verið kjörin inn í stjórnir flokksins erum öll á einu máli um að gera okkar ítrasta til að sanna okkur, sanna okkar ásetning í því að efla starfið, gera það gagnsærra, gera það að verkum.“
Davíð Þór Jónsson, sem var oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi, segist liggja undir feldi um hvort hann ætli að halda áfram í flokknum.
Sanna Magdalena Mörtudóttir var endurkjörin sem pólitískur leiðtogi flokksins en hún sagði við mbl.is fyrr í dag að hún væri ósátt með vinnubrögð nýrrar stjórnar í aðdraganda aðalfundar og á fundinum.
Hefurðu áhyggjur af því að það myndist gjá á milli?
„Það væri hræðilegt,“ svarar Karl. „En hún er okkar kæri félagi og það er á okkur, nýju stjórnarmönnunum, að sanna okkur fyrir henni með góðum vinnubrögðum þar sem við sýnum fram á okkar einlæga ásetning um að bæta starfið, byggja traust og trúverðugleika áfram og við viljum sannarlega hafa hana með í því ferli.“