Andlát: Gunnar S. Björnsson

Gunnar Sigurbjörn Björnsson, fv. framkvæmdastjóri og formaður Meistara- og verktakasambands byggingarmanna, lést 20. maí síðastliðinn, á 93. aldursári.

Gunnar fæddist á bænum Bæ á Höfðaströnd í Skagafirði 4. september árið 1932. Foreldrar hans voru hjónin Björn Jónsson, bóndi á Bæ og hreppstjóri, lengi fréttaritari Morgunblaðsins í austanverðum Skagafirði, og Kristín Ingibjörg Kristinsdóttir húsfreyja, frá Ingveldarstöðum á Reykjaströnd.

Gunnar tók sveinspróf í húsasmíði frá Iðnskólanum á Sauðárkróki og öðlaðist síðar meistararéttindi í greininni. Starfaði hann fyrst við múrverk, síðan húsasmíði og var sjálfstætt starfandi byggingarverktaki og eigandi fyrirtækisins Akureyjar árin 1961-1971. Gunnar var um tíma framkvæmdastjóri og formaður Meistarafélags húsasmiða og síðar Meistara- og verktakasambands byggingarmanna árin 1971-1988. Hann átti sæti í stjórn Húsnæðisstofnunar og síðar Íbúðalánasjóðs allt frá 1980 til 2008, var þar af stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs í nokkur ár. Gunnar vann lengi við matsstörf fyrir Húsatryggingar Reykjavíkurborgar og sinnti verkefnastjórn og eftirlitsstörfum við húsbyggingar og verklegar framkvæmdir.

Gunnar átti sæti í ýmsum öðrum stjórnum og nefndum, m.a. fyrir Vinnuveitendasamband Íslands, Landssamband iðnaðarmanna, Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, Byggingastaðlaráð, Lífeyrissjóð byggingarmanna, skólanefnd Iðnskólans í Reykjavík og Samband almennra lífeyrissjóða.

Gunnar gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, var m.a. formaður húsnæðisnefndar flokksins, og söng í áratugi í nokkrum kórum, m.a. Skagfirsku söngsveitinni. Þá var hann í stjórn félags áhugafólks um byggingu tónlistarhúss, forvera Hörpu. Gunnar var heiðursfélagi í Meistarafélagi húsasmiða og Málarameistarafélagi Reykjavíkur og hlaut gullmerki Landssambands iðnaðarmanna.

Eiginkona Gunnars var Brynhildur Jónsdóttir (Bíbí), f. 1933, d. 2024. Þau gengu í það heilaga 23. desember 1954 og bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík. Börn Gunnars og Bíbíar eru Guðmundur Björn, húsasmíðameistari og verktaki, f. 1955, Kristín Ingibjörg, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri gjörgæslu á Landspítala, f. 1957, Helgi Smári, byggingaverkfræðingur, húsasmíðameistari og fv. forstjóri, f. 1960, og Jón Bjarki viðskiptafræðingur, f. 1967. Barrnabörnin eru 11 talsins og langafabörnin 15.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »