Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir rangt að hún hafi verið „slompuð“ á Alþingi í vikunni, líkt og Vísir fjallaði um í dag. Þá segir hún einnig rangt að hún hafi sótt um nám í Columbia-háskóla áður en landsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn, líkt og Heimildin fjallaði um, en frétt Heimildarinnar hefur nú verið tekin út.
„Í vikunni var fádæma veðurblíða og virtust flestir Íslendingar njóta sólargeislanna. Sjálf fékk ég mér vínglas á meðan ég spilaði Backgammon með vinkonu og nældi mér í sólbruna,“ segir Áslaug Arna á Facebook.
Af því hafi birst mynd á samfélagsmiðlum og sama dag hafi hún haldið ræðu fyrir Bioeffect.
„Mannlíf tók upp á því að gera þetta tortryggilegt, birti myndina á vefsíðu sinni og lét að því liggja að ég hefði mætt óvenju þreytt í ræðustól Alþingis síðla kvölds sama dag. Nú hafa fleiri miðlar tekið í sama lágkúrulega streng. Þetta eru auðvitað fráleitar ávirðingar að láta liggja að einhverju sem stenst enga skoðun og kollegar mínir geta staðfest,“ segir Áslaug Arna.
Ræðuna umtöluðu flutti Áslaug í þingsal á þriðjudagskvöldið, en sjá má ræðuna í meðfylgjandi upptöku á vef Alþingis.
Segir Áslaug Arna einnig rangt að hún hafi sótt um nám í Columbia-háskóla í New York í Bandaríkjunum áður en landsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn, líkt og Heimildin fjallaði um.
Gagnrýnir hún umfjöllun miðilsins fyrir að standa ekki undir nafni og afla sér heimilda. Einkar auðvelt sé að sýna fram á staðfestingu frá skólanum um það hvenær umsókn hennar hafi borist.
„Ég fékk undanþágu, sem ég óskaði eftir að loknum landsfundi, vegna sérstakra kringumstæðna og vann að umsókninni allan marsmánuð og skilaði henni ekki fyrr en 2. apríl. Stjórnmálin og Sjálfstæðisflokkurinn áttu hug minn allan fram að landsfundi og ég ekki farin að huga að öðru,“ segir Áslaug Arna.
„Sumarið kom, það er horfið um stund en kemur vonandi aftur. Hugsanlega hvarf lífsgleði fjölmiðla með sólinni en mín er enn á sínum stað. Ég fer létt inn í helgina, fæ mér kannski vínglas, mæti í brúðkaup góðra vina, veiti ríkisstjórninni nauðsynlegt aðhald um þau mál sem raunverulega skipta máli og held áfram undirbúningi flutninga til New York,“ segir Áslaug Arna í lokin.