Eldgosasýning í Perlunni „geggjaður aukaréttur“

Gestir fylgdust með tilkomumikilli sýningunni.
Gestir fylgdust með tilkomumikilli sýningunni. mbl.is/Eyþór

Forstjóri Perlunnar segist vera hæstánægður með að vera treyst fyrir því að eignast og reka áfram þetta vinsæla kennileiti borgarinnar í Öskjuhlíð.

Í morgun var undirritaður kaupsamningur á milli Reykjavíkurborgar og Perlunnar þróunarfélags ehf. upp á 3,5 milljarða króna vegna Perlunnar og tveggja tanka hennar af sex. Samningurinn var undirritaður í nýjum sýningarskála í Perlunni og þar verður einmitt sýning opnuð í næsta mánuði sem er ætlað að hjálpa fólki að upplifa eldgos á eins raunverulegan hátt og mögulegt er. Sú hugmynd fæddist í janúar í fyrra. 

Bruni, gjaldþrot flugfélags og Covid

„Við erum að vinna áfram náið með Reykjavíkurborg og erum stolt af því að vera treyst fyrir þessu,” segir forstjórinn Gunnar Gunnarsson, sem ræddi við blaðamann eftir að tilkomumikil sýningin hafði verið sýnd viðstöddum.

Gunnar Gunnarsson í nýja sýningarsalnum í Perlunni.
Gunnar Gunnarsson í nýja sýningarsalnum í Perlunni. mbl.is/Eyþór

„Við skrifuðum undir leigusamninginn 2016. Við erum búin að reka þetta núna í tíu ár, við erum búin að fara í gegnum bruna, fara í gegnum gjaldþrot flugfélags, fara í gegnum Covid og við erum hér enn,” bætir hann við um rekstur Perlunnar þróunarfélags ehf. „Þetta er búið að vera áhugavert ferðalag en við erum komin á góðan stað í dag.”

500 milljóna sýning

Í kaupsamningnum felst að Reykjavíkurborg á forkaupsrétt að Perlunni. Aðrar kvaðir eru þær að Perlan skal nýtt undir afþreyingartengda starfsemi, auk þess sem grunnskólabörn í Reykjavík fá að koma í skipulagðar heimsóknir í náttúrusafn Perlunnar tvívegis á skólagöngunni endurgjaldslaust.

Gunnar segir fyrirtæki sitt ætla að reka Perluna áfram um ókomin ár, það sé ekki að tjalda til einnar nætur og er hann afar bjartsýnn á framtíðina í Öskjuhlíðinni.  

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Gunnar Gunnarsson við undirritun samningsins.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Gunnar Gunnarsson við undirritun samningsins. mbl.is/Eyþór

„Ég held að með því að frumsýna sýningu í Reykjavík sem kostar 500 milljónir til að auka við upplifun Reykvíkinga og gesta segir mjög mikið um hvar við erum að tjalda. Við elskum þetta verkefni og ætlum að vera í því eins lengi og við höfum krafta og þor og dug til,” svarar Gunnar, glaður í bragði.  

400 þúsund miðar í fyrra

Spurður hvort eldgosasýningin verði helsta aðdráttaraflið eftir að hún opnar bendir hann á að í Perlunni sé nú þegar einstakt safn, hannað af helstu sérfræðingum landsins.

„Það skiptir engu máli hvert þú lítur, við erum með jarðfræðinga og líffræðinga og alla sem koma að því að búa til einstakt náttúrusafn á heimsvísu. Þetta er viðbót við það, þetta er bara geggjaður aukaréttur, við vorum með fjögurra rétta en nú erum við komin með fimm rétta, sjö rétta eða níu rétta,” segir hann jafnframt en um 400 þúsund miðar voru seldir í Perluna á síðasta ári.

„Með því að bæta við svona sýningu sem ekki er til í heiminum trúum við því að gestir labbi ennþá ánægðari í burtu, ef hægt er, vegna þess að við erum besta afþreying á Íslandi, samkvæmt Tripadvisor.”

Spurður nánar út í kaupsamninginn sem var undirritaður í morgun og hvort Perlan þróunarfélag hafi sóst lengi eftir því að kaupa segir hann svo ekki vera. Reykjavíkurborg hafi eingöngu auglýst eignina til sölu, sett lágmarksverð á hana og félagið hafi verið eini kaupandinn sem uppfyllti skilyrðin.

Heiða Björg og Gunnar.
Heiða Björg og Gunnar. mbl.is/Eyþór

Vill fleiri Íslendinga í heimsókn

Gunnar hvetur Íslendinga til að láta sjá sig í Perlunni og njóta þeirrar afþreyingar sem er þar í boði, þeir séu hjartanlega velkomnir líkt og erlendu ferðamennirnir.

„Þetta er fullkomið svæði fyrir alla. Ef þú hugsar til þess að eingöngu 4% Íslendinga koma hingað á sýningu sem er einstök á heimsmælikvarða. Menn gleyma því stundum hvað er í nærumhverfi sínu, þannig að ég skora á Íslendinga til að koma og kíkja í heimsókn og segja hæ.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »