Rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir það ekki hafa komið sér á óvart að um 100 milljónir króna hafi verið sviknar út úr fyrirtækjum og einstaklingum á tveimur á hálfum mánuði, eða frá byrjun mars fram í miðjan maí.
„Ég get ekki sagt að þetta komi mér neitt sérstaklega á óvart,“ segir Guðjón Rúnar Sveinsson rannsóknarlögreglumaður aðspurður og nefnir að þarna sé verið að tala um 100 milljónir sem lögreglan viti um. Í fæstum tilfellum tilkynni einstaklingar svik sem þessi til lögreglunnar, oft á tíðum vegna þess að þeir skammist sín fyrir að vera sviknir. Guðjón Rúnar tekur þó fram að allir geti lent í þessu og því ekkert til að skammast sín fyrir.
Spurður nánar út fjársvikin í mars, april og maí segir hann tilhæfulausa reikninga hafa leitt til stærstu fjársvikanna á þessu tímabili gagnvart fyrirtækjum en varðandi einstaklinga hafi það verið fjárfestingasvindl. Til dæmis hafi fólk verið hvatt til að fjárfesta í rafmyntinni Bitcoin eða einhverju öðru þar sem því sé boðin „aðstoð".
„Þessi heildarupphæð sem fólk lendir í að tapa getur farið frá hundruðum þúsunda króna upp í tíu milljónir eða meira,“ greinir hann frá.
Netsvik hafa verið að aukast jafnt og þétt, segir Guðjón jafnframt, og nefnir þar aukna nýtingu svikahrappa á samfélagsmiðlum og annarri tækni. Hann kveðst ekki hafa tölur yfir slík svik á síðasta ári til samanburðar en lögreglan hafi orðið vör við aukningu seinnipartinn í fyrra og það sem af er þessu ári.
Guðjón nefnir sem dæmi notkun speglunarforrita svokallaðra á borð við Anydesk til að komast inn í önnur forrit í síma og/eða tölvum og í tilkynningu frá lögreglunni í fyrradag var einmitt varað sérstaklega við slíkum svikum.
Einnig segir hann gervigreind vera notaða til að svíkja fólk, m.a. með því að láta hana búa til vefsíður sem líta út fyrir að vera raunverulegar.
Hann ítrekar jafnframt að fólk sé meðvitað þegar það notar rafrænu skilríkin sín, að það sé handvisst um að það sé sjálft að óska eftir aðgangi en enginn annar.
Spurður hvort fjölgað hafi í hópi lögreglumanna sem sinna netsvikum, í ljósi aukningar á slíkum glæpum, segir Guðjón lögregluna alltaf vera að auka þekkinguna í kringum þessi mál og fleiri hendur komi að þeim en betur megi ef duga skal varðandi mannskap.