Brynhildur Glúmsdóttir
Eiríkur Örn Jóhannesson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ekki hægt að spá fyrir um hvort þessi vika endurspegli veður sumarsins og hvetur fólk til þess að njóta á meðan er. Hitametið í maí féll í síðustu viku.
Undanfarna daga hefur verið mikil veðurblíða landinu öllu. Spáin lítur þó ekki jafn vel út fyrir næstu daga.
Eiríkur segir það áhugavert að þetta hlýja og sólríka veður hafi verið svona marga daga í röð. Hlýir dagar í maí séu þekktir en óalgengt sé að fá svona marga í röð. Einnig sé áhugavert að góða veðrið hafi náð yfir allt landið en ekki bara hluta þess.
Aðspurður hvað valdi þeim breytingum á veðrinu næstu daga segir Eiríkur að í kringum landið hafi verið hæðir norðaustur af landinu. Þeim fylgi hæg- og blíðviðri, það sé það sem landsmenn hafi notið góðs af síðustu daga.
„Nú er þó hæðin að færa sig austar og þá er pláss fyrir lægðirnar sem hafa verið að fara til Grænlands, nú munu þær ná til okkar. Við erum að fara í algengara veðurástand, úrkomu og svo birtir til á milli,“ segir Eiríkur.