Heimsforeldri í 15 ár: „Mér ber skylda“

„Ég er svo auðug kona – ég á tvö börn …
„Ég er svo auðug kona – ég á tvö börn og sex barnabörn sem öll eru heilbrigð og dugleg í lífinu og það er mín þökk. Mér ber skylda. Mér finnst þetta gott málefni. Ég vil styrkja það,“ segir Kolbrún. mbl.is/Karítas

Kolbrún Linda Ísleifsdóttir hefur verið heimsforeldri í rúmlega 15 ár. Á ársfundi UNICEF í dag var hún beðin um að standa upp og uppskar hún mikið lófaklapp.

Í samtali við mbl.is segist Kolbrún hafa gerst heimsforeldri eftir að hafa hugsað til allra barnanna í heiminum sem lifa ekki við sömu mannréttindi og lífsgæði og hennar eigin börn og barnabörn.

„Mér finnst við bara svo heppin. Ef börnin okkar veikjast eða slasast þá fá þau heilbrigðisþjónustu. Ef þau langar til að læra þá geta þau farið í nám. Þau þurfa ekki að eiga afar vel stæða foreldra til að fá grunnþjónustu,“ segir Kolbrún.

„Ég er svo auðug kona“

Sonur Kolbrúnar býr með fjölskyldu sinni í Lundi í Svíþjóð og dóttir hennar býr með sinni fjölskyldu austur á Egilstöðum. Barnabörn Kolbrúnar búa svo ýmist erlendis eða á Egilstöðum.

„Ég sakna þeirra svo og það er hluti af þessu, ég vil hugsa um börn. Ekki bara íslensk fátæk börn heldur bara í heiminum.

Ég er svo auðug kona – ég á tvö börn og sex barnabörn sem öll eru heilbrigð og dugleg í lífinu og það er mín þökk. Mér ber skylda. Mér finnst þetta gott málefni. Ég vil styrkja það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »