Engin merki um aflögun eftir skjálftahrinu

Smáskjálftahrina mældist við Sýlingafell síðdegis í gær.
Smáskjálftahrina mældist við Sýlingafell síðdegis í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Smáskjálftahrina mældist við Sýlingafell síðdegis í gær en tæplega 60 skjálftar mældust á innan við klukkutíma.

Bjarki Kaldalón Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við mbl.is að flestir skjálftarnir hafi mælst í Sundhnúkagígaröðinni og hafi þeir allir verið undir 1,6 að stærð.

„Það kom gul viðvörun inn í kerfin okkar og við fylgjumst vel með þróun mála á þessu svæði en engin merki sáust á ljósleiðara, GPS-mælum eða borholugögnum um aflögun og því var ekki um kvikuhlaup að ræða,“ segir hann.

Hann segir að dregið hafi verulega úr skjálftunum strax í gærkvöld og að fáir skjálftar hafi mælst í nótt.

Landris mælist áfram í Svartsengi, sem bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar á svæðinu en fram kom í tilkynningu frá Veðurstofunni í gær að ef hraði landrissins haldist svipaður og hann hefur verið megi ætla að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi fari að aukast þegar líða fer á haustið.

Breytingar á hraða landriss, og þar með kvikusöfnunar undir Svartsengi, geta þó haft áhrif á þetta mat.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »