Dregið úr virkni og stærð skjálfta við Grímsey

Um 130 jarðskjálftar hafa mælst í grennd við Grímsey síðastliðinn …
Um 130 jarðskjálftar hafa mælst í grennd við Grímsey síðastliðinn sólarhring. mbl.is/Anton Guðjónsson

„Það hefur dregið verulega úr virkninni en það eru ennþá að mælast skjálftar og síðasta sólarhring hafa þeir verið eitthvað í kringum 130.“

Þetta segir Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is spurð út í stöðuna í grennd við Grímsey þar sem skjálftahrina hófst aðfaranótt 14. maí.

Stærsti skjálftinn sem mælst hefur í hrinunni var 5 að stærð. Steinunn segir að skjálftarnir sem séu að mælast núna séu flestir undir tveimur að stærð.

„Það má segja að bæði virknin og stærð skjálftanna fara minnkandi en það er erfitt að segja til um hvenær þessari hrinu lýkur alveg,“ segir Steinunn.

Hún segir að líklegast að um sniðgengishreyfingar á jarðskorpunni sé að ræða en Grímsey liggur á þverbrotabelti og er virknin að mestu bundin við svæði rétt austan við Grímsey.

Áframhaldandi landris í Svartsengi

Spurð út í stöðuna á Reykjanesskaganum segir Steinunn að þó nokkur skjálftavirkni sé úti fyrir Reykjanestá og við kvikuganginn á Sundhnúkagígaröðinni. Hún segir áframhaldandi landris vera í Svartsengi.

Steinunn segir að ekki sé búist við að það dragi til tíðinda í Svartsengi á næstunni en mat vísindamanna er að líkur á eldgosi aukist þegar líða fer á haustið. Síðasta eldgos, það áttunda í goshrinunni á Sundhnúkagígaröðinni frá því hún hófst í desember 2023, hófst 1. apríl síðastliðinn og stóð yfir í um sex klukkustundir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »