Nýtt ákvæði hefur verið tekið upp í skilmála ökutækjatrygginga VÍS, þar sem segir að hafi „tjónsatburður orðið er tryggðum eða hverjum þeim sem gerir kröfur um bætur í trygginguna, skylt að varðveita og veita VÍS aðgang að hljóð- og myndupptökum og hverskyns rafrænum upplýsingum sem skráðar eru í tölvubúnaði ökutækisins eða aukabúnaði þess.“
Í skriflegu svari Hildar Bjarkar Hafsteinsdóttur markaðsstjóra VÍS við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að með téðri breytingu sé verið að bæta inn í skilmálana samhljóða ákvæði og verið hafi í skilmála kaskótryggingar ökutækja frá 1. janúar 2024. Sambærileg ákvæði hafi einnig verið að finna í skilmálum annarra íslenskra tryggingafélaga um nokkurra ára skeið. Ákvæðið sé því ekki nýtt af nálinni, en VÍS hafi verið síðast tryggingafélaga að bæta því inn í skilmála kaskótryggingar, en ekki séu öll tryggingafélög með ákvæðið inni í lögbundinni ábyrgðartryggingu ökutækja.
Spurningu um hvort þetta eigi við um þau ökutæki sem eru með slíkan búnað innbyggðan, eða hvort krafist sé að tryggingartakar komi upp slíkum búnaði í bílum sínum, segir Hildur Björk að þetta eigi aðeins við um búnað sem til staðar sé í bifreiðum, en engin krafa gerð um að bæta við slíkum búnaði í ökutæki.
Markmiðið með ákvæðinu sé að hafa heimild í skilmála svo unnt sé að nýta gögn úr tækjabúnaði ökutækja til þess að komast að réttri niðurstöðu í tjónamálum, t.d. þegar ágreiningur sé um hvað gerst hafi.
Þá segir í svarinu að ákvæðið eigi við um atburði þar sem tjón hefur orðið, en ekki væri óskað upplýsinga um annað, enda hefði VÍS ekki hagsmuni af slíku. Fram kemur að í persónuverndarstefnu VÍS komi fram að þær persónuupplýsingar sem VÍS vinni úr séu nýttar í samræmi við tilgang vinnslunnar, t.d. til þess að leysa úr ágreiningi við afgreiðslu tjóna.
Spurningu um hvernig tryggingartakar geti treyst því að VÍS fari leynt með persónulegar upplýsingar tryggingartaka sem fram kunni að koma á hljóð- eða myndupptökum, svarar Hildur Björk þannig að fyrirtækið beri ábyrgð á vinnslu og meðferð persónuupplýsinga sem unnið sé með í starfsemi félagsins og teljist því ábyrgðaraðili samkvæmt lögum um persónuvernd. VÍS hafi sett reglur um vinnslu persónuupplýsinga sem ætlað sé að tryggja að starfsfólk VÍS vinni samkvæmt persónuverndarlögum og í samræmi við góða viðskiptahætti.
Starfsemi félagsins krefjist þess að meðhöndla þurfi mikið magn persónuupplýsinga, þ.m.t. viðkvæmar persónuupplýsingar. Mikil áhersla sé lögð á meðhöndlun og trúnað um persónuupplýsingar í starfseminni sem og við þjálfun starfsfólks. Strangar aðgangsstýringar séu að öllum persónuupplýsingum.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.