Sköllóttur Vance eða maríjúana ástæða brottvísunar

J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna er hárprúður maður. Það var hann …
J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna er hárprúður maður. Það var hann hins vegar ekki á myndinni sem finna mátti í síma Mikkelsen. AFP

Norskum ferðamanni, hinum 21 árs gamla Mads Mikkelsen, var gert að yfirgefa Bandaríkin eftir að landamæraverðir á flugvelli urðu varir við skopmynd af varaforsetanum J. D. Vance í síma Mikkelsen.

Mads segir í viðtali við BBC að landamæravörður einn hafi sagt myndina vera hættulegan  og öfgakenndan áróður. Mikkelsen sagði hana bara vera grín eða „meme“.

Tricia Mc­Laug­hlin, talsmaður banda­ríska heima­varn­ar­ráðuneyt­is­ins, sagði þó í færslu á X að Mikkelsen hafi ekki verið snúið við vegna grínmyndarinnar af J. D. Vance heldur vegna þess að hann hafi viðurkennt að hafa stundað eiturlyfjanotkun. 

Mikkelsen brást við því og sagðist hafa viðurkennt að hafa notað maríjúana tvisvar um ævina á stöðum þar sem notkun efnisins sé lögleg. Í umfjöllun BBC kemur fram að bandarísk lög kveði á um að heimilt sé að meina fólki inngöngu inn í landið fyrir eiturlyfjanotkun, þrátt fyrir að það hafi ekki verið ákært fyrir glæp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »