Þurfa ekki að sitja kennslustundir um kynvitund

Dómurinn taldi það brjóta gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna að heimila foreldrunum …
Dómurinn taldi það brjóta gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna að heimila foreldrunum ekki að taka börnin úr kennslustundunum vegna trúar þeirra. Ljósmynd/Colourbox

Foreldrum í Bandaríkjunum er nú heimilt að taka börn sín úr kennslustundum þar sem þeim er kennt um kynvitund. Þetta geta þau gert á trúarlegum forsendum. 

Þetta er niðurstaða Hæstaréttar Bandaríkjanna en nokkrir kristnir og múslímskir foreldrar í Maryland lögðu fram kæru árið 2022 þar sem þau mótmæltu því að börn þeirra þyrftu að sitja kennslustundir í grunn- og leikskólum þar sem stuðst væri við bækur sem fjalla um kynvitund. 

Dómurinn taldi það brjóta gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna að heimila foreldrunum ekki að taka börnin úr kennslustundunum vegna trúar þeirra. 

Sex dómarar í Hæstarétti dæmdu með kröfu foreldranna á meðan að þrír greiddu atkvæði á móti. Samuel Alito, einn dómari hjá Hæstarétti, sagði að umræddar kennslubækur væru gerðar til þess að fagna ákveðnum gildum og skoðunum. 

„Fyrir marga trúaða er trúarlegt athæfi þeirra mikilvægara en trúarleg menntun barna þeirra,“ skrifaði Alito í áliti sínu um málið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »