Yfirvöld á Rússlandi lýstu því yfir í dag að þau kæmu til með að hunsa úrskurði nýs sérstaks Úkraínudómstóls eftir að samkomulag um stofnun hans var undirritað af Evrópuráðinu og Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu.
„Starf og ákvarðanir þessara aðila verða merkingarlausar fyrir okkur. Við munum líta á aðild allra ríkja sem koma að dómstólnum sem óvinveitt athæfi,“ sagði María Zakharova, talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins.