Myrtur, bútaður niður og brenndur

Í Løten í Innlandet-fylki búa tæplega 8.000 manns. Voveiflegt manndráp …
Í Løten í Innlandet-fylki búa tæplega 8.000 manns. Voveiflegt manndráp var framið þar á gamlárskvöld 2023. Ljósmynd/Wikipedia.org/Jan-Tore Egge

Saksóknararnir Ingrid Hagen Veen og Magnus Schartum-Hansen krefjast sautján ára fangelsisrefsingar í voveiflegu manndrápsmáli sem í fyrra vakti ótta og óbeit í Løten, tæplega 8.000 íbúa sveitarfélagi steinsnar frá norska bænum Hamar í Innlandet-fylki þar sem aðalmeðferð málsins lauk í dag fyrir Héraðsdómi Østre Innlandet.

Ákærða í málinu er kona á fimmtugsaldri sem gefið er að sök að hafa á gamlárskvöld 2023 myrt 37 ára gamlan sambýlismann sinn, Ole Andreas Sønstvedt, með öxi, bútað lík hans niður og brennt á svokallaðri bálpönnu við býli sitt í Løten.

Við rannsókn málsins hjá lögreglu og síðar í framburði sínum fyrir héraðsdómi greindi ákærða frá því að þau Sønstvedt hefðu kynnst á lýðnetinu árið 2022 og ekki liðið á löngu uns hann kom til hennar í heimsókn og, eins og hún sjálf lýsir því, fór ekki aftur.

Yfirheyrð í 26 klukkustundir

Ákærða lá ein undir grun við rekstur málsins hjá lögreglu og var handtekin skömmu eftir að Sønstvedt hvarf sporlaust. Í samtals 26 klukkustunda yfirheyrslum í janúar, febrúar og mars í fyrra stóð hún fast við þann framburð sinn að hún hefði ekki hugmynd um hvað varð af hinum myrta.

Það var svo í nóvember sem hún dró framburð sinn til baka og játaði að hafa verið stödd í tjaldi á landareign sinni, svokölluðu lavvo að samískri hefð. Greindi hún enn fremur frá því að Sønstvedt, sem kom frá Grenland í Telemark-fylki, hefði í fyrstu verið ljúfmennskan ein, hjálpsamur og þægilegur í umgengni.

Ole Andreas Sønstvedt kom í heimsókn í ákærðu og fór …
Ole Andreas Sønstvedt kom í heimsókn í ákærðu og fór að hennar sögn aldrei aftur. Enda er henni gefið að sök að hafa myrt hann, bútað niður og brennt. Ljósmynd/Úr einkasafni

Er frá leið hafi skuggahliðar hans hins vegar farið að birtast hægt og bítandi. Kvað ákærða Sønstvedt á köflum hafa verið lítt við alþýðuskap og grófan í hátterni. „Ég áttaði mig á því hve ótrúlega hverflyndur hann var,“ sagði hún fyrir dómi. Hafi hegðun Sønstvedt valdið henni kvíða og óró, ekki síst er hann fór ítrekað út til að „redda hlutum“, en þá hafi hann að hennar sögn stolið því sem útvega þurfti.

Bað ákærða Sønstvedt að lokum að hafa sig á brott og flytja til baka til Telemark. Þess í stað hafi hann leigt sér herbergi í Elverum, skammt frá heimili hennar og í kjölfarið sótt að henni sem eltihrellir.

„Konur drepa líka“

Gaf konan, ákaflega kurteis og dagfarsprúð að sögn Schartum-Hansen saksóknara, fyrst þá skýringu að þrír óþekktir menn hefðu ráðist á Sønstvedt að henni ásjáandi og komið honum fyrir kattarnef. Hefði hún þagað um atburðinn vegna hótana þremenninganna óþekktu.

Smátt og smátt tókst lögreglu að hrekja skýringar ákærðu þar til þær hrundu eins og spilaborg.

„Þetta sýnir okkur að konur drepa líka,“ sagði Schartum-Hansen fyrir héraðsdómi um leið og hann benti á að ákærða væri ekki ólíkleg til að geta haft í fullu tré við Sønstvedt, hæðarmunur á þeim væri einungis einn sentimetri.

„Meðferðin á líki hins látna er grimmileg og hrottaleg. Hún er hrein vanvirða við látna sjálfan og aðstandendur hans,“ sagði hinn saksóknarinn, Veen. Ákæruvaldið þykist þess fullvisst að ákærða hafi lagt á ráðin um víg fórnarlambs síns áður en til verknaðarins kom á gamlárskvöld 2023. Krefjast saksóknarar því sautján ára fangelsis – en einnig vegna þess að þau telja það hreinan uppspuna ákærðu að Sønstvedt hafi verið hverflyndur eltihrellir er hugði sér misgott til ætlunar.

Myrtur til fjár?

Kenning saksóknaranna er nefnilega sú að ákærða hafi myrt Sønstvedt til fjár auk þess sem hún felldi hug til annars manns. Árið 2023 var Sønstvedt greidd umtalsverð bótafjárhæð og komst hann þá í nokkrar álnir. Uppvíst varð við rannsóknina að hann hafði fært tvær bifreiða sinna yfir á nafn ákærðu.

Vitað var að börnum hennar var í nöp við hann og vildu ekki hafa hann á heimilinu auk þess sem tveir hestaeigendur, sem vistuðu dýr sín á eign ákærðu, höfðu á honum illan bifur.

Allar skýringar ákærðu pössuðu, benti Schartum-Hansen á – það eina sem ekki stóðst var ástæðan til að senda Sønstvedt á vit feðra sinna. Ákærðu stóð engin ógn af Sønstvedt, hún ásældist eigur hans og hafði hugsað sér annan mann sem förunaut.

Reiknað er með dómi í málinu í júlí.

NRK

NRK-II (öðrum grunuðum ekki til að dreifa)

NRK-III (brenndi ókjör viðar á níu dögum)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »