„Ástandið er eldfimt, óstöðugt og stórhættulegt“

Hér má sjá loftvarnarkerfi Ísraels verja borgara gegn flugskeytaárásum Írans.
Hér má sjá loftvarnarkerfi Ísraels verja borgara gegn flugskeytaárásum Írans. AFP/Menahem Kahana

Arnór Sigurjónsson, sérfræðingur í varnarmálum, segir að vopnahléið milli Ísraels og Írans virðist ekki ætla að halda. Staðreyndin sé sú að stríð geisi í Mið-Austurlöndum og að Bandaríkjamenn hafi með árásum sínum leyst úr læðingi öfl sem erfitt sé að stjórna.

„Ég held að menn verði að horfast í augu við raunveruleikann og raunveruleikinn er að það geisar stríð í Mið-Austurlöndum. Það nær til Líbanons, Sýrlands, Írans og Ísraels,” segir Arnór og bendir á flugskeyta- og drónaárásir gegn Katar, Írak og Ísrael.

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi að Íranar og Ísraelsmenn hefðu fallist á vopnahléstillögu hans. Í morgunsárið hafa hins vegar ásakanir gengið á víxl um brot á vopnahléinu.

„Ástandið er eldfimt, óstöðugt og stórhættulegt. Þetta vopnahlé sem Trump kunngerði í gærkvöldi virðist ekki ætla að halda,” segir hann.

Árásirnar þjappi saman Írönum

Um helgina gerðu Bandaríkjamenn stórfellda árás á kjarnorkuinnviði Írans til að koma í veg fyrir getu Írana til að byggja kjarnorkuvopn.

Arnór segir að árásin hafi leyst úr læðingi öfl sem erfitt sé að stjórna og óttast hann að árásir Ísraelsmanna undanfarna daga hafi þétt saman írönsku þjóðinni.

„Ég hygg að meðan þeir standa andspænis þeirri ógn sem þessar árásir Ísraelsmanna eru, bæði á kjarnorkuvinnviði og borgaraleg skotmörk í Teheran og annars staðar, að þá held ég að staða klerkastjórnarinnar kunni að styrkjast til skemmri tíma. Ég held að þetta hafi þveröfug áhrif við það sem menn hefðu kannski talið, að þetta myndi vera til þess að klerkastjórnin hrynji,” segir Arnór.

Arnór Sigurjónsson.
Arnór Sigurjónsson. mbl.is/Hallur Már

Hann segir að ekki eigi að afskrifa stuðning Hisbollah-hryðjuverkasamtakanna í Líbanon við Íran sem og stuðning hryðjuverkahópa í Írak við Íran.

Telur hann til dæmis að drónaárásir á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak séu að undirlagi þessara hópa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »