Trump tilkynnir vopnahlé

AFP/Brendan Smialowski

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti nú fyrir skemmstu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, að Ísraelar og Íranar hefðu samið um allsherjarvopnahlé í átökum sínum, sem staðið hafa yfir í tólf daga. 

Í færslu sinni segir Trump að algjört vopnahlé verði komið á innan 12 klukkustunda og að líta megi svo á að stríðinu sé þar með lokið. 

„Þetta stríð hefði getað haldið áfram árum saman og eyðilagt Mið-Austurlönd, en það gerði það ekki og mun aldrei gera það. Guð blessi Ísrael, guð blessi Íran, guð blessi Mið-Austurlönd, guð blessi Bandaríkin og guð blessi heiminn,“ segir Trump í hástemmdri færslu sinni.  

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »