Tveir grunaðir hafa verið handteknir í Frakklandi eftir að 27 ára gömul brúður var myrt í sinni eigin brúðkaupsveislu í þorpi í suðausturhluta Frakklands.
Brúðurin lést er vopnaðir menn réðust inn í veisluna í þorpinu Goult klukkan hálffimm að morgni þegar nýgiftu hjónin voru að yfirgefa veisluna. Einn árásarmannanna lést í árásinni.
Þrír einstaklingar, þar á meðal 25 ára brúðguminn og 13 ára barn, særðust í árásinni, sem hafði að vonum mikil áhrif á þorpsbúa.
Samkvæmt heimildum AFP gæti árásin tengst uppgjöri vegna fíkniefna og hafa tveir árásarmannanna, sem eru á aldrinum tuttugu til þrjátíu ára, verið handteknir. Sá þriðji er enn á flótta.
Rannsókn á morði og tilraun til manndráps af hendi skipulagðs glæpagengis er hafin. Annar heimildarmaður AFP segir lögreglu áður hafa þurft að hafa afskipti af brúðgumanum vegna fíkniefnabrota og skipulagðrar glæpastarfsemi.
Ekki er ljóst hvort hinn látni árásarmaður hafi verið skotinn af einum af hinum árásarmönnunum, af brúðgumanum eða öðrum. Einhverjar heimildir herma að hann hafi orðið fyrir bíl hjónanna er þau reyndu að flýja.