Dómstóll í Frakklandi hefur ákært og fangelsað 17 ára stuðningsmann Ríki íslams [ISIS] sem grunaður er um að hafa verið að skipuleggja árásir á bænahús gyðinga, kynlífsverslanir og opinberar samkomur.
„Hann var ekki kominn á það stig að framkvæma árás en hann var að undirbúa sig,“ sagði Bruno Retailleau, innanríkisráðherra Frakklands, í viðtali hjá franska sjónvarpsmiðlinum LCI.
Hinn grunaði var handtekinn á þriðjudag. Verjandi sakborningsins sagði að skjólstæðingur hans væri „erfiður drengur sem var að prófa mörk þess sem er bannað, það er enginn raunverulegur ásetningur,“ sagði hann.
„Það er margt sem þarf að skýra nánar, sérstaklega varðandi andlegt ástand hans,“ bætti hann við og útilokaði alla „öfgavæðingu.“
Retailleau sagði að hinn grunaði hefði svarið hollustu við hryðjuverkasamtökin Ríki íslam.