Bolsonaro sakaður um njósnir og tilraun til valdaráns

Jair Bolsonaro var forseti Brasilíu á árunum 2019 til 2022.
Jair Bolsonaro var forseti Brasilíu á árunum 2019 til 2022. AFP/Evaristo Sa

Lögreglan í Brasilíu boðaði Jair Bolsonaro í réttarsal fyrir tilraun til valdaráns í dag. Sonur Bolsonaro hefur staðfest að einnig eigi að kæra fyrrverandi forsetann fyrir njósnir sem lögreglan grunar hann um að hafa fyrirskipað á þeim tíma þegar hann var forseti Brasilíu. 

Hann gæti hlotið allt að 40 ára fangelsi fyrir glæpina sem hann er sakaður um. 

Lögreglan hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að Bolsonaro, sem var forseti landsins frá 2019 til 2022, hafi „stofnað til ólöglegrar glæpasamtaka sem hafi njósnað með ólögmætum hætti um opinbera starfsmenn og vísvitandi dreift falsfréttum til fólks“.

Tekur fyrir ásakanirnar

Hinn hægrisinnaði Bolsonaro tapaði kosningunum árið 2022 fyrir hinum vinstrisinnaða Luiz Inacio Lula da Silva. Hann er grunaður um að hafa lagt á ráðin um að halda völdum þrátt fyrir niðurstöður kosninganna. 

Bolsonaro hefur tekið fyrir allar slíkar ásakanir og sagt þær vera pólitískar ofsóknir, upplognar til að koma í veg fyrir endurkomu hans í stjórnmálin. Verði hann dæmdur sekur, getur hann ekki boðið sig fram í forsetakosningunum í Brasilíu árið 2026. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »