Útgöngubann áfram í Los Angeles

Karen Bass, borgarstjóri Los Angeles.
Karen Bass, borgarstjóri Los Angeles. AFP/Mario Tama

Útgöngubann að nóttu til verður áfram í borginni Los Angeles í „nokkra daga í viðbót”, sagði Karen Bass borgarstjóri í gær.

Þá höfðu mótmæli staðið yfir í borginni í níu daga vegna aðgerða Bandaríkjastjórnar gegn ólöglegum innflytjendum en fjölmargir af rómönskum uppruna búa í Los Angeles. 

Frá mótmælum gegn ríkisstjórn Trumps í Los Angeles um helgina.
Frá mótmælum gegn ríkisstjórn Trumps í Los Angeles um helgina. AFP/Ringo Chiu

Mótmælin hafa að mestu farið friðsamlega fram og einskorðast við lítið svæði í miðborg Los Angeles. Eitthvað hefur þó verið um ofbeldi, sem forsetinn Donald Trump hefur notað sem ástæðu til að senda þangað fjögur þúsund manna þjóðvarðalið og 700 landgönguliða.

Bass setti á útgöngubann 10. júní sem gildir á umræddu svæði í miðborginni þar sem mótmælin hafa farið fram. Í gær sagðist hún vona að ofbeldið þar muni fjara út.

Þjóðvarðliðar fyrir fram þinghús Los Angeles í gær.
Þjóðvarðliðar fyrir fram þinghús Los Angeles í gær. AFP/Apu Gomes

Í viðtali við sjónvarpsstöðina KTLA sagðist Bass ekki vita hversu lengi útgöngubannið verður í gildi.

„Við vitum ekki hversu margar aðgerðir gegn innflytjendum verða, við vitum ekki hvernig þær fara fram og í hvert sinn sem það gerist grípur um sig mikil reiði í borginni,” sagði hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »