Borgarar flýja Teheran

Íbúar írönsku höfuðborgarinnar Teheran flýja hana nú hver um annan þveran af ótta við loftárásir Ísraelsmanna sem á föstudag gerðu slíkar árásir á nokkur skotmörk í Íran – að þeirra sögn til þess að hindra að þessi erkióvinur þeirra nái að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Hafa írönsk stjórnvöld hafnað því alfarið að slíkt standi fyrir dyrum.

Myndefni af samfélagsmiðlum, sem AFP-fréttastofan segir ósvikið, sýnir miklar umferðarteppur í norðurátt á þjóðvegi sem liggur út úr höfuðborginni. Umferð í gagnstæða átt er á sama tíma nánast engin.

Fram til þessa hafa árásir Ísraela orðið að minnsta kosti 224 manns að bana í Íran, þar á meðal hátt setta stjórnendur hersins og kjarnorkuvísindamenn, en einnig almenna borgara, eftir því sem írönsk stjórnvöld greina frá.

Reykjarmökkur stígur upp af byggingu í Suðvestur-Teheran í dag eftir …
Reykjarmökkur stígur upp af byggingu í Suðvestur-Teheran í dag eftir árás Ísraelsmanna. AFP/Atta Kenare

Vara við umferð við hernaðarmannvirki

Hafa þau brugðið á það ráð að loka lofthelgi landsins um óákveðinn tíma vegna árásanna sem táknar að einu flóttaleiðirnar út úr landinu eru á jörðu niðri. Gagnárásir Írana hafa að sögn Ísraela orðið 24 að bana í Ísrael.

Hafa Ísraelar tekið Írönum vara á að vera á ferð nálægt öllum þeim hernaðarmannvirkjum í borgum Írans þar sem fjöldi hermanna eða sérsveitarmanna er til staðar, hvort sem þeir eru einkennisklæddir eður ei.

Íranskir fréttamiðlar hafa birt myndefni sem sýnir biðraðir hundraða bifreiða við bensínstöðvar í Teheran og borginni Karaj og látið þær skýringar fylgja að borgarar fylli þar tanka sína til að búa sig undir akstur til öruggari svæða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »