Pútín vill leysa átökin með „diplómatískum leiðum“

Vladimír Pútín Rússlandsforseti ræddi við leiðtoga Írans og Ísraels fyrr …
Vladimír Pútín Rússlandsforseti ræddi við leiðtoga Írans og Ísraels fyrr í dag. AFP/Ramil Sitikov

Vladímír Pútín Rússlandsforseti hvatti leiðtoga Írans og Ísraels til þess að draga úr spennu milli landanna í símtölum sem hann átti við leiðtogana fyrr í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá rússneskum yfirvöldum fordæmdi Pútín árásir Ísraels og vottaði samúð sína vegna þeirra sem létust í árásunum, þar á meðal óbreyttra borgara, í samtali sínu við leiðtoga Íran

Í samtali sínu við Netanjahú sagði Pútín að kjarnorkumál Írans ætti eingöngu að leysa „með pólitískum og diplómatískum leiðum“.

Þá hvatti hann báða aðila til að snúa aftur að samningaborðinu, og bauðst jafnvel til að miðla málum.

Spennan í átökunum færist í aukana

Íran­ir gera nú harða gagnárás á Ísra­el til að hefna fyr­ir á­rás­ir á her- og kjarn­orku­stöðvar víða um Íran sem hóf­ust í nótt.

Fjöldi hátt­settra ír­anskra her­manna og vís­inda­manna hafa látið lífið í árás­un­um. Ísra­elsk yf­ir­völd hafa þó greint frá því að „eins og er séu eng­in áform um að fella stjórn­mála­leiðtoga í Íran“.

Íran­ir hafa kallað árás Ísra­ela „stríðsyf­ir­lýs­ingu“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »