Rafael Grossi, yfirmaður kjarnorkumálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, greindi frá því á neyðarfundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem stendur nú yfir að stærstur hluti kjarnorkustöðva Írans sem eru ofanjarðar hafi eyðilagst í árásum Ísraelshers.
Hann sagði að öll rafmagnsinnviði og neyðarrafstöðvar kjarnorkustöðvar sem staðsett er í héraðinu Natanz hefðu verið eyðilagðar, sem og sá hluti aðstöðunnar þar sem úran var auðgað.
Aðalskilvinda stöðvarinnar sem staðsett er neðanjarðar virðist þó ekki hafa beðið skaða. Þó kann að vera að rafmagnsleysið sem árásin olli gæti hafa valdið skemmdum á þeim hluta stöðvarinnar.
Í samtali við mbl.is fyrr í dag útskýrði Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Rússlandi, að kjarnorkuinnviði Írana og kjarnorkuáætlun þeirra væri helsta ástæða árása Ísraelsmanna.
„Það sem er vitað er að Íranir eru með kjarnorkuáætlun sem þeir segja að sé friðsamleg en það hafa alltaf verið efasemdir um það. Árið 2005 sagði kjarnorkumálastofnunin beinlínis að Íranar væru að svindla og núna í vikunni sagði stofnunin aftur að hún hefði grunsemdir um að Íranar séu ekki að standa við skuldbindingar sínar.
Þetta er náttúrulega það sem Ísraelsmenn eru að horfa á og núna segja þeir að Íranar séu ekki lengur með kjarnorkuáætlun sem snúist um friðsama kjarnorku og að þeir séu komnir á það stig, sérstaklega með aukningu úranframleiðslu, að þeir geti beinlínis farið að útbúa kjarnorkuvopn,“ sagði Albert.