Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðið Indlandi aðstoð sína í kjölfar flugslyssins sem varð í borginni Ahmedabad í morgun.
Aðeins einn farþegi af 242 komst lífs af.
Trump tjáði blaðamönnum í Hvíta húsinu að hann hefði látið indversk stjórnvöld vita að ef það væri eitthvað sem Bandaríkjamenn gætu gert til að hjálpa, þá myndu þeir koma til Indlands um leið.
„Þetta var skelfilegt flugslys,“ bætti forsetinn við.
Í kjölfar slyssins greindi bandaríska flugslysanefndin (NTSB) frá því að rannsóknarteymi hennar myndi ferðast til Indlands til að aðstoða indversk yfirvöld við rannsókn málsins.