Volodimír Selenski Úkraínuforseti hvetur Bandaríkin og Evrópu til að bregðast við nýjum árásum Rússa sem skutu meira en 300 drónum og sjö eldflaugum á borgir í Úkraínu í nótt, þar á meðal höfuðborgina Kænugarð.
Selenskí segir í færslu á samfélagsmiðlinum X en árásir Rússa á Kænugarð í nótt séu þær mestu frá upphafi stríðsins en hann segir að Rússar hafi skotið 315 drónum og sjö eldflaugum, þar af tveimur frá Norður-Kóreu.
„Það er afar mikilvægt að viðbrögðin við þessari og öðrum svipuðum árásum Rússa séu ekki þögn frá heiminum, heldur raunverulegar aðgerðir,“ skrifar Selenskí.
Í það minnsta tveir eru látnir eftir árásirnar í nótt og á annan tug eru særðir.