Donald Trump Bandaríkjaforseti segir ákvörðunina um að kalla út þjóðvarðliðið í Kaliforníu til að takast á við óeirðirnar í Los Angeles hafa verið frábæra.
„Ef við hefðum ekki gert það, hefði Los Angeles verið algjörlega þurrkuð út,“ segir Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social.
Uppnefnir hann Gawin Newsom, ríkisstjóra Kaliforníu, Gavin Newscum, sem gæti verið þýtt sem Gavin Nýúrþvætti, ásamt því að segja hann vera óhæfan í starfi sínu.
Newsom var mótfallinn ákvörðun Trumps og sagðist í dag ætla að kæra Trump fyrir að senda þjóðvarðliðið án samþykkis ríkisstjóra.
Trump segir að Newsom og Karen Bass, borgarstjóri Los Angeles, ættu í raun að þakka sér fyrir aðstoðina og segja: „TAKK, FORSETI TRUMP, ÞÚ ERT SVO DÁSAMLEGUR. VIÐ VÆRUM EKKERT ÁN ÞÍN, HERRA.“
Þess í stað hefðu þau logið að íbúum Kaliforníuríkis og Bandaríkjunum með því að segja að þau hefðu ekki þurft á aðstoðinni að halda.