Lögregla kom í veg fyrir átök við þjóðvarðliðið

Um var að ræða þriðja dag mótmæla gegn aðgerðum inn­flytj­enda­stofn­un­ar­inn­ar …
Um var að ræða þriðja dag mótmæla gegn aðgerðum inn­flytj­enda­stofn­un­ar­inn­ar ICE. AFP

Mótmælendur kveiktu í bílum og áttu í útistöðum við lögreglu í Los Angeles í gær. Lögregla hélt mótmælendum frá hermönnum þjóðvarðliðsins sem Donald Trump Bandaríkjaforseti sendi á götur borgarinnar. 

Um var að ræða þriðja dag mótmæla gegn aðgerðum inn­flytj­enda­stofn­un­ar­inn­ar ICE. Stofnunin handtók tugi farandverkamanna sem hún sagði vera ólöglega innflytjendur og liðsmenn glæpagengja. 

Í gær ákvað Trump að senda tvö þúsund hermenn þjóðvarðliðsins til Los Angeles vegna mótmælanna. Í fyrsta skipti síðan árið 1965 sem Banda­ríkja­for­seti hef­ur sent út þjóðvarðlið án beiðni frá rík­is­stjóra.

„Það var ekkert vandamál fyrr en Trump skarst í leikinn,“ sagði í færslu Gavin Newsom ríkisstjóra á X. 

56 handteknir á tveimur dögum

Kveikt var í að minnsta kosti þremur bílum og tveir aðrir voru skemmdir er mótmælendur fóru um afmarkað svæði í miðborg Los Angeles. 

Umferð var stöðvuð á stórri hraðbraut í meira en klukkustund á meðan mótmælendur söfnuðust þar saman. Lögregla kom fólkinu í burtu með reyksprengjum. 

Síðdegis komu lögreglumenn borgarinnar á fót varðlínu í nokkurri fjarlægð frá alríkisbyggingum til þess að koma í veg fyrir að mótmælendur kæmust í tæri við þjóðvarðliða sem höfðu safnast saman. 

Hermenn þjóðvarðliðsins fyrir utan Metropolitan-fangelsið sem rekið er af alríkinu.
Hermenn þjóðvarðliðsins fyrir utan Metropolitan-fangelsið sem rekið er af alríkinu. AFP

Er rökkva tók voru enn nokkrir mótmælendur á svæðinu sem köstuðu meðal annars flugeldum. 

Lögreglan hefur handtekið að minnsta kosti 56 einstaklinga á síðustu tveimur dögum. Þrír lögreglumenn hafa hlotið minni háttar meiðsl. 

Lögregla í Los Angeles kom í veg fyrir átök við …
Lögregla í Los Angeles kom í veg fyrir átök við hermenn þjóðvarðliðsins. AFP

„Við erum að horfa á hermenn alls staðar“

Trump var spurður út í skipun sína í gær og gaf þá í skyn að hermenn þjóðvarðliðsins yrðu sendir á fleiri svæði landsins. 

„Þú ert með ofbeldisfullt fólk og við ætlum ekki að leyfa þeim að komast upp með það,“ sagði hann við blaðamenn. „Ég held að þú eigir eftir að sjá mjög sterka löggæslu.“

Spurður hvort hann myndi skrifa undir tilskipun sem heimilar bandaríska hernum að ganga inn í störf lögreglu sagði Trump: „Við erum að horfa á hermenn alls staðar. Við ætlum ekki að leyfa þessu að gerast í landinu okkar.“

Herinn greindi frá því að um 500 hermenn væru í viðbragðsstöðu ef þörf væri á aðstoð í yfirstandandi alríkisaðgerðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »