„Lirfur frá helvíti“ kostað milljónir

Þessi dýr kalla Óðinsvéungar „lirfur frá helvíti“ enda geta þau …
Þessi dýr kalla Óðinsvéungar „lirfur frá helvíti“ enda geta þau gert þeim er á snerta ýmsa skráveifu, kláða, útbrot og andnauð. Ljósmynd/Sveitarfélagið Óðinsvé

Stjórnendur Óðinsvéa á danska eylandinu Fjóni hafa leitað til erlendra sérfræðinga í baráttu sinni við plágu sem í daglegu tali er kölluð „lirfur frá helvíti“ og örðugt hefur reynst að uppræta, smávaxnar skepnur, grábrúnar að lit sem skarta löngum hvítum hárum og geta valdið kláða, útbrotum og andþyngslum hjá þeim er á snerta.

„Lirfur frá helvíti“ er í raun huggulegra heiti á dýr þessi en fræðiheitið Thaumetopoea processionea sem á dönsku útleggst „egeprocessionsspinderen“ (lumi lesendur á íslensku heiti er það velkomið í pósti til blaðamanns) og eins má geta þess að Óðinsvé eru enn sem komið er eini fundarstaður tegundarinnar í Danmörku.

„Sveitarfélagið hefur tekið á málinu af röggsemi,“ segir Søren Windell bæjarfulltrúi í samtali við Ritzau-fréttastofuna, „og þótt við kærum okkur lítið um að eiga Danmerkurmetið í „egeprocessionsspinder“ gleðst ég yfir því að smærra sveitarfélag varð ekki fyrir þessu, þar sem ef til vill hefði verið enn vandasamara að fá rönd við reist,“ bætir fulltrúinn við.

Beiðist verklagsreglna

Meðal þess sem gervöll stétt meindýraeyða Óðinsvéa hefur fengist við upp á síðkastið er að fjarlægja hátt í þúsund lirfuhreiður í suðausturhluta bæjarins og úða eitri yfir 1.200 tré. Sveitarfélagið hefur hins vegar látið setja upp flennistór gul aðvörunarskilti þar sem fólk er eindregið varað við að snerta á „lirfunum frá helvíti“, hvort sem er lífs eða liðnum, auk þess sem því er tekinn vari á að koma nálægt trjám með lirfuhreiðrum.

Allt hefur þetta umstang kostað 350.000 danskar krónur sem jafngildir tæpum sjö íslenskum milljónum.

Þótt Windell sé þakklátur fyrir það sem þegar hefur verið gert óskar hann þó eftir því að til þess bær stjórnvöld gefi út verklagsreglur um tegundina sem herjar á bæinn. „Okkur hefur verið leiðbeint um rottur, tröllahvönn og svo framvegis og nú þætti mér ráð að fá gefnar út reglur á landsvísu um varnir gegn „egeprocessionsspinder“,“ segir hann.

Þótt Óðinsvé séu langt komin í baráttu sinni við aðskotadýr þessi er landi hvergi nær náð.

DR

Óðinsvé (umfjöllun á heimasíðu bæjarins)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »