„Hermenn alls staðar“ ef mótmælin aukast

Donald Trump Bandaríkjaforseti fer um borð í forsetaþotuna Air Force …
Donald Trump Bandaríkjaforseti fer um borð í forsetaþotuna Air Force One í New Jersey-ríki í kvöld. AFP/Andrew Caballero-Reynolds

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist aðspurður ekki telja að um uppreisn sé að ræða í Los Angeles-borg, en ef mótmælin muni aukast eða dreifast í aðrar bandarískar borgir muni yfirvöld „hafa hermenn alls staðar“, að því er BBC greinir frá.

Trump ræddi við fjölmiðla í forsetaþotu sinni í kvöld og voru mótmælin helsta umræðuefnið.

„Við ætlum ekki að láta þetta gerast í okkar landi,“ sagði forsetinn í kvöld. „Við ætlum ekki að láta þetta land verða rifið í sundur.“

Maður handtekinn í Los Angeles-borg í kvöld.
Maður handtekinn í Los Angeles-borg í kvöld. AFP/Frederic J. Brown

Mótmælin að aukast

Nokkur hundruð þjóðvarðliðar eru nú á götum Los Angeles og hafa mótmælin farið vaxandi það sem af er kvöldi.

Hefur lögreglan meðal annars þurft að beita táragasi og hefur hún einnig hleypt af gúmmískotum.

Mótmælendur halda á lofti skyltum sem stendur á „ICE út …
Mótmælendur halda á lofti skyltum sem stendur á „ICE út úr LA“. AFP/Robyn Beck

Þriðji dagur mótmæla

Mót­mæl­i brut­ust út vegna hand­töku inn­flytj­enda­stofn­un­ar­inn­ar ICE á tug­um far­and­verka­manna í Los Angeles og er dagurinn í dag sá þriðji í röð sem mótmælt er.

Átök brut­ust út á milli mót­mæl­enda og óeirðalög­reglu og notaði lög­regla meðal ann­ars tára­gas.

Trump kallaði út 2.000 hermenn úr þjóðvarðaliðinu í Kaliforníuríki til að halda uppi lögum og reglu á svæðinu, þvert á óskir ríkisstjóra.

Lögreglumaður í Los Angeles í kvöld.
Lögreglumaður í Los Angeles í kvöld. AFP/Frederic J. Brown

Ógnvænleg misnotkun valds

Ríkisstjórar Demókrataflokksins í Bandaríkjunum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir mótmæla ákvörðun Trumps að kalla út þjóðvarðliðið. 

„Ákvörðun Trumps forseta um að senda út þjóðvarðlið Kaliforníu er ógnvænleg misnotkun valds,“ sögðu ríkisstjórarnir.

„Það er mikilvægt að við virðum framkvæmdavald ríkisstjóra landsins til að stjórna þjóðvarðliði sínu.“

AFP/Frederic J. Brown
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »