Bretar hyggjast banna botnvörpuveiðar á meira en helmingi verndaðra hafsvæða Englands.
Umhverfisráðherra Bretlands, Steve Reed, segir að bannið verði tilkynnt á hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna á morgun.
Bannið tekur gildi á 41 vernduðu hafsvæði sem spannar 30 þúsund ferkílómetra.
Fyrir var bann við botnvörpuveiðum á 18 þúsund ferkílómetra hafsvæði. Við nýtt bann nær það yfir 48 þúsund ferkílómetra.
Reed segir tilkomu bannsins koma í veg fyrir frekari skemmdir á hafsbotni eftir botnvörpuveiðar.