Yfirvöld í Venesúela fundu fjórtán lík á bát í norðausturhluta Venesúela fyrr í dag. Þeir látnu eru allir frá Afríku.
Talið er að dánarorsök þeirra látnu sé vökvaskortur og hungur. Líkin fundust á bát í norðausturríkinu Delta Amacuro, en um er að ræða farandverkamenn.
Diosdado Cabello, dómsmálaráðherra Venesúela, staðfesti að líkin væru öll frá Afríku, sum þeirra frá Malí.