Utanríkisráðherra Þýskalands, Johann Wadephul, sagði á þingfundi í dag að ríkið myndi halda vopnasendingum til Ísraels áfram, þrátt fyrir að hafa áður gefið í skyn að þær væru í endurskoðun.
Hann sagði Ísrael vera ógnað af Hútum í Jemen og Hesbollah í Líbanon og Íran á meðan hernaðaraðgerðir þess á Gasaströndinni standa yfir.
„Þýskaland mun halda áfram að styðja Ísrael, þar á meðal með vopnasendingum,“ sagði ráðherrann.
Þingfundi var raskað af mótmælanda sem hrópaði „Frelsið Palestínu,“ og „Nei við þjóðarmorði,“ en mótmælandanum var í kjölfarið fylgt út af áhorfendapöllunum.
Fyrr um daginn var þingmanni vinstri flokksins Die Linke, Cansin Kokturk, gert að yfirgefa þingsalinn fyrir að klæðast bol merktum Palestínu.
Þýskaland hefur verið einn öflugasti stuðningsaðili Ísraels í tilraunum sínum til að bæta fyrir morð á meira en sex milljónum gyðinga í helförinni.
Hins vegar sagðist íhaldssami kanslarinn Friedrich Merz í síðustu viku ekki skilja lengur hvað ísraelski herinn sé enn að gera á Gasasvæðinu.
Hann bætti við að áhrifin á almenna borgara á Gasa væri ekki lengur hægt að réttlæta með baráttu gegn hryðjuverkum Hamas.