Söguleg áfengislöggjöf í Svíþjóð

Sveitarfélagið Nacka norðan Stokkhólms varð fyrst til þess að bjóða …
Sveitarfélagið Nacka norðan Stokkhólms varð fyrst til þess að bjóða áfengi smáframleiðenda til sölu á sunnudaginn og ræddi sænska ríkisútvarpið SVT við starfsfólk Nacka-brugghússins sem kvaðst hafa beðið dagsins lengi. Ljósmynd/Nacka Bryggeri

„Þetta tók á taugarnar, margar spurninganna voru snúnar og með mörgum valmöguleikum,“ segir Misur Kim, bruggari við Nacka-brugghúsið í samnefndu sveitarfélagi, Nacka, norðan sænsku höfuðborgarinnar Stokkhólms.

Prófið, sem hún greinir frá í samtali við sænska ríkisútvarpið SVT, þurfti hún að þreyta á sunnudagsmorguninn, 1. júní, klukkan hálftíu og standast það ásamt samstarfsfólki sínu við brugghúsið svo þar fengist það skref löglega stigið á slaginu klukkan tíu sem lengi verður í minnum haft í sænskri áfengis- og verslunarsögu.

Þá tóku nefnilega gildi í landinu lög um býlissölu, „lag om gårdsförsäljning“, sem leyfa minni áfengisframleiðendum, það er brugghúsum, vínræktarbýlum og eimingarhúsum, að selja viðskiptavinum framleiðslu sína alla sjö daga vikunnar á milli klukkan 10 og 20.

Skipulagðar fræðsluheimsóknir skilyrði

Leyfið er vitanlega skilyrðum háð. Kaupendur þurfa að sýna fram á að hafa náð lögaldri til áfengiskaupa, sem er 20 ár í Svíþjóð, auk þess að þiggja fræðslu framleiðandans um þá drykki sem hann býður til sölu og um skaðsemi áfengis. Má salan einungis eiga sér stað í tengslum við skipulagðar fræðsluheimsóknir.

Svo sem fram kemur hér að framan þurfa starfsmenn framleiðandans einnig að hafa lágmarksþekkingu sem þeim er ætlað að sanna með krossaprófinu sem Kim talar um í inngangi fréttarinnar og er það sama og þreyta þarf og standast til þess að hljóta almennt vínveitingaleyfi í Svíþjóð.

„Þessa höfum við beðið lengi og nú er biðin á enda,“ segir Vlado Marusic, framkvæmdastjóri Nacka-brugghússins, við SVT, um leið og hann afhendir fyrsta sunnudagsviðskiptavininum kassa með úrvali af bjórframleiðslu hússins – viðbúnaðar- og útflutningsmálaráðherranum Benjamin Dousa.

Gildistíminn sex ár til að byrja með

Lögin reisa skýrar skorður til verndar einokunarstöðu ríkisáfengisverslunarinnar Systembolaget og kveða í því skyni, auk fræðsluheimsóknanna framangreindu, á um það hámarksmagn sem hver viðskiptavinur má kaupa í hverri heimsókn til áfengisframleiðenda. Er þar um að ræða 0,7 lítra af sterku áfengi, þrjá lítra af víni, þrjá lítra af sterkum bjór og þrjá lítra af öðrum tegundum drykkja með áfengisinnihaldi.

Til að falla undir lögin um býlissölu þurfa framleiðendurnir að teljast til minni framleiðenda sem lögum samkvæmt felur í sér að framleiðsla slíks fyrirtækis má ár hvert ekki fara yfir 75.000 lítra af sterku áfengi, 400.000 lítra af öðrum áfengum drykkjum sem innihalda allt að tíu prósent vínanda og 200.000 lítra af öðrum áfengum drykkjum með yfir tíu prósenta vínandainnihald.

Til að byrja með er gildistími laganna nýju sex ár, en að þeim tíma liðnum munu sænsk stjórnvöld meta hvort endir verði bundinn á býlissöluna eða henni veitt brautargengi til frambúðar.

SVT

Wine Table

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »