Hollenska stjórnin fallin

Geert Wilders sést hér ræða við fjölmiðla í dag.
Geert Wilders sést hér ræða við fjölmiðla í dag. AFP

Hollenski Frelsisflokkurinn, PVV, sem Gert Wilders leiðir, hefur sagt skilið við ríkisstjórnarsamstarfið vegna deilna um innflytjendamál. Hollenska samsteypustjórnin er því fallin og allt stefnir í kosningar.

Wilders hefur verið ósáttur við það sem hann telur hægan gang við að innleiða „ströngustu innflytjendastefnu sem sögur fara af“, sem samið var um við samstarfsflokka eftir óvæntan kosningasigur hans í nóvember 2023.

„Engin undirskrift fyrir hælisleitendaáætlun okkar... PVV yfirgefur samsteypustjórnina,“ sagði Wilders í færslu á X og vísaði þar til Frelsisflokksins, sem er lengst til hægri á hinum pólitíska ás.

Þetta gerist aðeins nokkrum vikum áður Holland tekur að sér að vera gestgjafi leiðtogafundar NATO.

Misheppnuð lokatilraun

Í morgun var gerð lokatilraun til að leysa úr deilunni en fram kemur í umfjöllun AFP að fundur leiðtoga samsteypustjórnarinnar, sem var fjögurra flokka stjórn, hafi staðið yfir í tæpan hálftíma án árangurs.

„Ég hef greint forsætisráðherranum frá því að ég muni draga ráðherra PVV úr ríkisstjórninni og að við getum ekki lengur borið ábyrgð á þessu,“ sagði Wilders.

„Ég samþykkti að taka þátt til að koma á laggirnar strangri hælisleitendaáætlun, ekki fyrir fall Hollands og því lýkur ábyrgð okkar á þessari ríkisstjórn hér með,“ bætti hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »