Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, kynnti í dag varnaráætlun sem á að undirbúa ríkið undir stríðsátök í ljósi ógnar frá Rússum. Tilkynnt var meðal annars um að smíðaðir verði tólf nýir árásarkafbátar.
Forsætisráðherrann varaði við því að ógnin sé yfirvofandi, alvarlegri, og ófyrirsjáanlegri en nokkurn tímann síðan í kalda stríðinu, er hann kynnti áætlunina í borginni Glasgow.
„Við stöndum frammi fyrir stríði í Evrópu, nýrri kjarnorkuhættu, daglegum netárásum, vaxandi sókn Rússa í hafsvæði okkar og ógn í háloftunum,“ bætti hann við.
Starmer sagði að ríkisstjórn hans stefndi að því að koma þremur grundvallarbreytingum á fót.
„Í fyrsta lagi erum við að færa okkur yfir í að stríðsviðbúnaður sé meginmarkmið herja okkar,“ sagði hann.
Í öðru lagi hélt forsætisráðherrann því fram að varnarmálastefna Bretlands myndi alltaf hafa NATO í öndvegi og einnig sagði hann að Bretland myndi leggja áherslu á hraðari nýsköpun í hernaði svo hægt sé að takast á við ógnir dagsins í dag og morgundagsins.
„Sérhver hluti samfélagsins, hver einasti borgari þessa lands, hefur hlutverki að gegna, því við verðum að horfast í augu við að hlutirnir hafa breyst í heiminum í dag. Víglínan, ef svo má að orði komast, er hér,“ bætti hann við.