Hamas-hryðjuverkasamböndin ætla ekki að samþykkja tillögu Bandaríkjamanna um vopnahlé á Gasa en talsmenn Hvíta hússins tilkynntu í gær að yfirvöld í Ísrael hefðu samþykkt tillögu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um vopnahlé.
Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir háttsettum manni í röðum Hamas-samtakanna að tillaga Bandaríkjamanna uppfyllti ekki grundvallarskilyrði þeirra um að binda enda á stríðið á Gasa en þeir ætli að áfram að kynna sér tillögurnar.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur áður sagt að Ísrael muni binda enda á stríðið aðeins þegar öllum gíslum verður sleppt, Hamas-samtökunum verður annaðhvort útrýmt eða afvopnuð og að leiðtogar þeirra hafa verið sendir í útlegð.
Talsmenn Hamas-samtakanna hafa sagt að þeir séu reiðubúnir að skila öllum þeim gíslum sem eru í haldi í skiptum fyrir endi á öllum hernaðaraðgerðum Ísraela og brotthvarfi þeirra frá Gasa.